Bílar

Audi Q4 Sportback E-tron verður sjöundi rafbíll framleiðandans

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Audi Q4 Sportback E-tron
Audi Q4 Sportback E-tron

Audi Q4 E-tron er væntanlegur á næsta ári og á að komast 500 kílómetra á hleðslunni. Audi áætlar að hafa 20 rafbíla í boði frá og með árinu 2025.

Bíllinn er í grunninn eins og Q4 E-tron sem er væntanlegur í lok árs. Þeir eru fyrstu bílarnir sem koma frá Volkswagen samsteypunni sem byggja á MEB grunninum.

Audi Q4 Sportback E-tron

Talsmaður Audi segir að MEB grunnurinn sé „hornsteinn í rafbílaframboði Audi.“ Talsmaðurinn bætti við „Við notum grunninn fyrir stóru rafbílana. Samlegðaráhrif samsteypunnar gera rafbílana tilbúna til fjöldaframleiðslu.“

Aðspurður hvort Q4 verði minnsti rafbíllinn sem notar MEB grunninn svaraði talsmaðurinn því til að svo verði næstu árin. En til standi þó að smíða fleiri rafbíla í minni kantinum á þeim grunni.

Útlitshönnuður Q4 Sprotback E-tron, Amar Vaya segir að lang mestur hluti hönnunarinnar sé eins og hugmyndabíllinn var. „Þetta er 90% eins - við gerðum bílinn aðeins breiðari og aðeins lægri og stuðararnir munu breytast aðeins. Það munu svo vera handföng á hurðum [en ekki innfelld handföng eins og hugmyndabíllinn var með].“

Innra rými í Audi Q4 Sportback E-tron

Aflgjafi

Fjórhjóladrifna útgáfan notast við tvo mótora. Krafturinn er samtals 302 hestöfl og bíllinn kemst úr kyrrstöðu og á 100 km/klst. á 6,3 sekúndum. Hámarkshraðinn er takmarkaður við 180 km/klst. til að tryggja drægni, þrátt fyrir að gefið sé inn.

Þá notar hann aðallega afturmótorinn, sem er skilvirkara en að nota báða. Rafhlaðan er 82 kWh. og hægt er að hlaða hana á 125 kW sem þýðir um 80% hleðslu á 30 mínútum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×