Samstarf

Nýjung frá Alfreð: Fyrirtækjaprófíll er frábær kynning

Alfreð
Anna Kristín Agnarsdóttir þjónustustjóri hjá Alfreð segir Fyrirtækjaprófíl Alfreðs frábæra leið til að kynna fyrirtæki sem vinnustað.
Anna Kristín Agnarsdóttir þjónustustjóri hjá Alfreð segir Fyrirtækjaprófíl Alfreðs frábæra leið til að kynna fyrirtæki sem vinnustað.

„Fyrirtækjaprófíll Alfreðs er upplagt tækifæri til að sýna allar bestu hliðar fyrirtækisins á fljótlegan og einfaldan máta,“ segir Anna Kristín Agnarsdóttir, þjónustustjóri hjá atvinnuvefnum Alfreð en Alfreð kynnir nýja og snjalla lausn handa fyrirtækjum sem vilja kynna sig betur fyrir tilvonandi starfsmönnum.

Einfalt að setja upp

Fyrirtækjum í viðskiptum við Alfreð stendur til boða að setja upp prófíl sér að kostnaðarlausu. Uppsetningin er einföld, Alfreð leiðir stjórnendur hratt og örugglega gegnum ferlið svo sést á svipstundu hvað í fyrirtækinu býr og kerfið heldur utan um öll mikilvægustu atriði.

Fyrirtækjaprófíll Alfreðs sjálfs.

Tikkað í öll box

„Fyrirtækjaprófíll byggist á kerfi sem gætir þess að tikkað sé í öll box svo að mikilvægir eiginleikar og kostir vinnustaðarins komi skýrt fram og ekkert verði út undan,“ útskýrir Anna Kristín. Sem dæmi um slík atriði nefnir hún jafnlaunavottun, umhverfisstefnu og fjölskylduvænt andrúmsloft sem Alfreð sér um að haldið sé til haga.

„Í dag má sjá þess merki að fólk í atvinnuleit leggur meiri áherslu á samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, fjölskylduvænna andrúmsloft, umhverfisstefnu og fleira sem ekki snýst um beinhörð launakjör. Með því að sýna allar bestu hliðar fyrirtækisins má ætla að fleiri finni draumastarfið með aðstoð Alfreðs og jafnframt, að fyrirtækið finni draumastarfskraft sinn til framtíðar.“

Opið hús á vefnum

Til að tengjast vinnumarkaði framtíðarinnar hafa fyrirtæki farið ýmsar leiðir gegnum tíðina. Vísindaferðir háskólafólks og starfskynningar grunnskólanema eru þekktar aðferðir til að tengja sig við vel menntað starfsfólk og einnig kunna iðnsýningar og ráðstefnur ef til vill að gagnast í því sambandi. Vefsíður fyrirtækja og samskiptasíður gefa jafnframt nokkra mynd af hverjum vinnustað fyrir sig en þessir miðlar eru þó fyrst og fremst sniðnir að viðskiptavinum. Fyrirtækjaprófíll Alfreðs er líkt og opið hús á vefnum og segir Anna Kristín Fyrirtækjaprófílinn vera stökk fram á við að þessu leyti og hjálpi til við að sækja markvisst í þann mannauð sem býðst á hverjum tíma.

Gríptu athyglina þar sem hún er

„Með fyrirtækjaprófíl hjá Alfreð gefst færi á að grípa athygli nákvæmlega þeirra sem fyrirtækið vill opna sig fyrir, hæfileikaríkum einstaklingum í leit að nýju starfi. Það kann líka að vera stjórnendum hollt að sjá það svart á hvítu hvar styrkleikarnir liggja og hvar fyrirtækið skilar auðu. Prófaðu að stilla upp prófíl fyrir þitt fyrirtæki og gríptu athyglina þar sem hún á best heima.“

Starfsánægja hefur keðjuverkandi áhrif

Anna Kristín segir Fyrirtækjaprófíl kærkomna viðbót fyrir þá stjórnendur sem vilja laða að sér rétta fólkið og skapa sterkari liðsheild innan fyrirtækisins.

„Það er allra hagur að starfsfólk viti að hverju það gengur og ýtir undir ánægju í starfi. Aukin starfsgleði eykur ekki bara afköst heldur smitar hún út frá sér þannig að vinnustaðurinn verður eftirsóknarverðari í augum allra sem eiga leið um fyrirtækið.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×