Íslenski boltinn

„Úti­vistar­tíminn var liðinn og hann hefði ekki mátt vera bolta­sækir í kvöld“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafur Kristjánsson var í settinu í gær.
Ólafur Kristjánsson var í settinu í gær. vísir/s2s

Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var ánægður með innkomu hins unga Loga Hrafns Róbertssonar í leik liðsins gegn Breiðabliki í gærkvöldi en Logi spilaði síðari hálfleikinn í fjörugu 3-3 jafntefli.

Logi Hrafn verður ekki sextán ára fyrr en síðar í mánuðinum en hann er fæddur í júlí 2004. Hann lék þó mikið með FH-liðinu á undirbúningstímabilinu þar sem þjálfarinn hreifst af honum en Ólafur var gestur Pepsi Max-tilþrifanna eftir leikinn.

„Í sjálfu sér ekki. Hann er búinn að spila mikið í vetur og standa sig feikilega vel. Hann er poll rólegur og leysti þetta verkefni mjög vel,“ sagði Ólafur.

FH missti einnig miðvörð út af í síðasta leik gegn Víkingum en þá valdi Ólafur að setja Loga ekki inn á.

„Við vorum með leik um daginn í Víkinni þar sem við þurftum að setja miðvörð inn á. Þar fannst mér leikurinn vera þess eðlis að við vorum í brekku og mér fannst ekki rétt að setja hann inn í svo langan tíma. Þegar maður setur ungan strák inn á, þá þarf maður að velja verkefnin vel.“

Logi spilaði ekki bara leik í gær því einnig æfði hann með U17-ára landsliði Íslands. Hann átti upphaflega ekki að vera í hópnum en vegna höfuðmeiðsla Guðmanns Þórissonar og Péturs Viðarssonar endaði hann á því að vera í hópnum.

„Það draup ekki af honum. Hann var á 40 mínútna æfingu í dag hjá KSÍ og hann átti ekki upphaflega að vera í leikmannahópnum. Pétur átti að vera en síðan þegar við vorum með Guðmann, sem er með höfuðmeiðsli, og er að detta út úr því. Hann spilaði hálfleik og Pétur er of stutt á veg kominn. Það er fúlt að detta út vegna höfuðmeiðsla í langan tíma.“

Aðspurður hvort að Logi kæmi til greina sem miðvörður liðsins í næstu leikjum svarað Ólafur rólegur.

„Logi er ungur og efnilegur og þarf sinn tíma eins og aðrir. Við þurfum ekkert að hæpa hann upp. Hann er poll rólegur og leysir þessi verkefni sem hann fær mjög vel. Hann var inni á miðjunni hjá okkur í vetur. Hann getur komið í miðvörðinn. Hann getur verið framtíðarmaður en útivistartíminn er liðinn og hann hefði ekki mátt vera boltastrákur í kvöld,“ sagði Ólafur léttur en samkvæmt tilmælum KSÍ þurfa boltasækjarar að vera sextán ára og eldri.

Klippa: Pepsi Max-tilþrifin - Ólafur um Loga

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×