Erlent

Börn Brittu Nielsen fá þunga fangelsisdóma

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Britta Nielsen í réttarsal árið 2018.
Britta Nielsen í réttarsal árið 2018. Vísir/AP

Þrjú börn Brittu Nielsen, fyrrverandi starfsmanns danskra félagsmálayfirvalda, voru í dag dæmd í fangelsi fyrir hylmingu. Þeim var gefið að sök að hafa tekið við samtals um 50 milljónum danskra króna frá móður sinni, sem dómurinn taldi ljóst að þau hefðu átt að vita að væri illa fengið fé. Öll hafa systkinin áfrýjað dómunum.

Nielsen var ákærð fyrir að hafa dregið sér á annað hundrað milljónir danskra króna frá danska ríkinu og hafði hún að stórum hluta játað sök. Hún var dæmd í sex og hálfs árs fangelsi fyrir umfangsmikil fjársvik í febrúar síðastliðnum.

Fertugur sonur Nielsen, Jimmy Hayat, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Dætur hennar, hin 36 ára Jamilla Hayat og Samina Hayat, 33 ára, hlutu einnig fangelsisdóma; Jamilla eitt og hálft ár og Samina þrjú og hálft ár.

Í frétt danska ríkisútvarpsins DR segir að sú síðastnefnda hafi þegið mest fé frá móður sinni, eða alls um 37 milljónir danskra króna. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að Saminu hefði átt að vera ljóst að fé móður hennar væri illa fengið. Samina og systkini hennar neituðu öll sök og báru því fyrir sig að þau hefðu ekki vitað að móðir þeirra hefði komist yfir fjármunina með glæpsamlegum hætti. Dómurinn taldi framburð þeirra þess efnis ekki trúverðugan.

Í ákæru sagði að á árunum 1997 til 2018 hefði Nielsen dregið sér fé alls 298 sinnum með ólöglegum hætti. Var hún ákærð fyrir að draga sér 115 milljónir danskra króna, um 2,1 milljarð íslenskra króna, en málið er eitt umfangsmesta fjársvikamál sem komið hefur upp í Danmörku.

Þá sagði jafnframt í ákæru að Nielsen hefði dregið sér fé á árunum1993 til 2002 en þá með öðrum aðgerðum. Auk alls þessa var hún ákærð fyrir skjalafals og embættisbrot. Nielsen sagði fyrir dómi að hún hefði eytt peningunum að stórum hluta í sjálfan sig – en einnig í börn sín.

„Þetta varð að einhvers konar fíkn, ég tók peninga og keypti það sem mér datt í hug. Var góð við börnin mín, var góð við fjölskyldu mína.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×