Sport

Vigdís Jónsdóttir bætti eigið Íslandsmet í sleggjukasti

Ísak Hallmundarson skrifar
Vigdís Jónsdóttir Íslandsmetshafi.
Vigdís Jónsdóttir Íslandsmetshafi. mynd/frí

Sleggjukastarinn Vigdís Jónsdóttir úr FH setti Íslandsmet í dag á 9. Origo móti FH er hún kastaði 62,69 metra og bætti sitt eigið Íslandsmet um 11 sentímetra.

Fyrra metið var um tveggja vikna gamalt en Vigdís átti það sjálf og var hún að bæta Íslandsmetið í þriðja sinn í sumar og í tólfta skiptið í heildina.

Vigdís er því greinilega í sínu besta formi en hún mun keppa á Meistaramótinu á Þórsvelli á Akureyri daganna 25. og 26. júlí, þar sem allt fremsta frjálsíþróttafólk landsins keppir á einu og sama mótinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×