Lífið

Ákvað strax að fara í brjóstnám

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hulda Bjarnadóttir er einn af stofnendum BRCA samtakanna.
Hulda Bjarnadóttir er einn af stofnendum BRCA samtakanna. Vísir/Vilhelm

„Ég var alltaf strax mjög ákveðin að ég vildi vita það,“ segir Hulda Bjarnadóttir í einlægu viðtali í hlaðvarpinu Fokk ég er með krabbamein sem birtist á Vísi í dag. 

Fyrir tæpum sex árum komst hún að því að hún væri með stökkbreytt BRCA gen. Á þeim tíma var móðir hennar að berjast við illkynja krabbamein og var þá greind með þetta gen. Hulda fór í blóðprufuna og fór svo í kjölfarið í brjóstnám sem fyrirbyggjandi aðgerð nokkrum mánuðum síðar. 

„Ég myndi vilja taka ákvarðanir sem að myndu stuðla að frekara heilbrigði.“

Hún segir þó að hver og einn þurfi að ákveða fyrir sig. Hulda segir að þó að hún hefði ekki verið orðin móðir hefði hún samt tekið sömu ákvörðun, þó eflaust hefðu komið upp söknuðartilfinningar á einhvern hátt yfir því að þurfa að sleppa brjóstagjöf. Einnig voru eggjastokkar Huldu fjarlægðir en þá átti hún tvö börn.

Hulda segir að það sé fallegt að sýna örin og hvetur fólk til að gera það, hafi það styrkinn til þess.

„Mér finnst þetta gríðarlega mikilvægt.“

Tvö af þremur systkinum Huldu reyndust einnig vera með BRCA genið. Í þessu ferli þurftu þau svo að kveðja móður sína. Börn Huldu gætu líka verið með genið og í þættinum talar Hulda um það. Einnig ræðir hún um útlitskröfurnar, Angelinu Jolie, andlega þáttinn og margt fleira.

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Í þættinum ræðir Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir einnig við Vigdísi Stefánsdóttur erfðaráðgjafa.


Tengdar fréttir

Stóðu saman í þessu frá upphafi

Sóli Hólm og Viktoría Hermannsdóttir höfðu aðeins verið saman í níu mánuði þegar hann greindist með krabbamein, sumarið 2017. Sóli hefur talað mjög opinskátt um þessi veikindi en hann íhugaði þó að halda krabbameinsgreiningunni leyndri frá öllum nema sínum nánustu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×