Sport

Bætti 37 ára gamalt Íslandsmet í gærkvöld

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hlynur Andrésson náði í sitt áttunda Íslandsmet í gærkvöld.
Hlynur Andrésson náði í sitt áttunda Íslandsmet í gærkvöld. Vísir/FRÍ

Hlynur Andrésson bætti í gærkvöldi 37 ára gamalt Íslandsmet í 3000 metra hlaupi á móti í Hollandi. Þetta kemur fram á vef Frjálsíþróttasambandsins í dag.

Hlynur hljóp á 8:04,54 mínútum og bætti fyrra Íslandsmet Jón Diðrikssonar frá árinu 1983 um rúma sekúndu. Þetta er hans áttunda Íslandsmet.

Þetta er fyrsta mót Hlyns í sumar en þann 1. júlí var reglum aflétt í Hollandi sem banna mótahald þar í landi. Líkt og aðrir frjálsíþróttamenn hefur Hlynur neyðst til að æfa mikið einn.

Hlynur segir að það henti sér vel að bíða og hanga í mönnum þar til stutt sé eftir þar sem hann sé hvað sterkastur á endasprettinum. 

Þegar þrír hringir voru eftir í gær - sem eru 1200 metrar - sá Hlynur að hann ætti möguleika á metinu og tók því af skarið. Það tókst vel þar sem hann náði forystunni og leiddi hlaupið það sem eftir var og setti Íslandsmet í leiðinni.

Er þetta enn eittmetið sem Hlynur bætir í safnið en hann á þegar metin í 5.000 og 10.000 metrum utanhúss og 3000 metra hindrunarhlaupi. 

Hlynur á einnig Íslandsmetið í greininni innanhúss þar sem hann hefur hlaupið undir átta mínútum. Hann segist því klárlega stefna á að bæta met sitt utanhúss enn frekar og mun hann fá tækifæri til þess þegar hann keppir aftur í sömu vegalengd í Belgíu eftir tæpar þrjár vikur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×