Innlent

Tólf börn dvelja í far­sótta­húsinu

Sylvía Hall og Nadine Guðrún Yaghi skrifa
Fyrir helgi voru yfir fimmtíu manns í sóttkví í farsóttarhúsinu á Rauðarárstíg.
Fyrir helgi voru yfir fimmtíu manns í sóttkví í farsóttarhúsinu á Rauðarárstíg. Mynd/Já.is

Þrjátíu og fjórir hælisleitendur dvelja nú í farsóttahúsinu á Rauðarárstíg, þar af tólf börn. Umsjónarmaður hússins segir að dvölin reynist barnafjölskyldum erfið og til skoðunar sé að opna sérstakt úrræði fyrir fjölskyldufólk.

Fyrir helgi voru yfir fimmtíu manns í sóttkví í farsóttahúsinu á Rauðarárstíg og var húsið nánast orðið yfirfullt vegna hælisleitenda sem komið hafa hingað til lands undanfarnar vikur.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd fara í skimun á Keflavíkurflugvelli og þurfa að svo búnu að dvelja í fimm daga í farsóttahúsinu áður en þeir fara í aðra skimum. Reynist það aftur neikvætt er fólkið útskrifað og fer í búsetuúrræði á vegum Útlendingastofnunar.

Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður farsóttahússins segir að nokkrir hafi verið útskrifaðir úr húsinu um helgina og staðan sé því öllu betri.

„Og erum þar af leiðandi á mun þægilegri stað í dag en við vorum fyrir helgi. Hjá okkur eru 36 núna og af þeim eru 34 sem eru í leit að alþjóðlegri vernd. Við erum hérna með nokkur börn hjá okkur," segir Gylfi.

Tólf börn dvelja nú í húsinu, yngsta um eins árs.

„Það hefur gengið mjög vel, en við aftur er á móti erum ekki vel í stakk búin til að sinna ungum börnum eins og staðan er akkúrat núna. En það hefur blessunarlega gengið vel."

Gylfi segir að til skoðunar sé að taka annað hús til leigu sem henti betur þörfum fjölskyldufólks.

„Á meðan þau eru hér í þessari biðsóttkví þessa fimm daga þá eru þau bara inni á sínum herbergjum og það er óneitanlega svolítið erfitt, enda erum við að skoða að vera með sérúrræði fyrir fjölskyldufólk," segir Gylfi.


Tengdar fréttir

Gæti þurft að takmarka fjölda farþega

Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans tekur alfarið yfir töku og greiningu sýna á landamærum Íslands eftir helgi. Forstjóri spítalans segir að dæmið ætti að geta gengið upp með breyttum vinnubrögðum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×