Innlent

Ör­væntið ekki, sumar­blíðan mun snúa aftur

Sylvía Hall skrifar
Sumarið er ekki búið.
Sumarið er ekki búið.

Þrátt fyrir nokkuð óvænt norðanskot þurfa landsmenn ekki að örvænta samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Nóg er eftir af sumarblíðunni þegar lægðin hefur gengið yfir en þó má búast við nokkuð síðra veðri fram yfir helgi.

Í dag er spáð mildu veðri en á morgun nálgast lægð af Grænlandshafi sem er sögð dýpka í meira lagi miðað við árstíma. Úrkoma mun því aukast með vaxandi vindi og verður komin hvöss austanátt við suðvesturströndina um kvöldið. Vindhviður verða því snarpar við fjöll og eru ökumenn með aftanívagna beðnir um að kanna vel veðurspár og akstursskilyrði.

Lægðin færist svo áfram norðaustur yfir landið og má búast við stífri norðanátt með kólnandi veðri og rigningu fyrir norðan.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:

Vaxandi austan- og suðaustanátt með rigningu, allt að 18 m/s við S- og V-ströndina og um kvöldið, en hægara og úrkomulítið eystra. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á A-landi.

Á fimmtudag:

Suðaustlæg eða breytileg átt, víða 5-13 m/s, en gengur í norðan 13-20 NV til. Rigning á öllu landinu, mest á Vestfjörðum og hiti víða 5 til 10 stig, en allt að 14 stigum eystra.

Á föstudag:

Útlit fyrir allhvassa eða hvassa norðanátt, rigningu og svalt veður á V-verðu landinu, en mun hægara, hlýrra og úrkomuminna fyrir austan.

Á laugardag og sunnudag:

Útlit fyrir áframhaldandi norðanátt með kalsarigningu á N-verðu landinu, en bjartviðri og hlýindum sunnan heiða.

Á mánudag:

Lægir líklega og léttir til víða um land og hlýnar, en áfram fremur svalt fyrir norðan og austan.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×