Innlent

Enn svekktari eftir fundinn en fyrir hann

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Fangelsið á Akureyri er í sama húsnæði og embætti lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Fangelsið á Akureyri er í sama húsnæði og embætti lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Vísir/Vilhelm/Samsett

Hilda Jana Gísladóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn á Akureyri, segist svekkt eftir fund sinn með dómsmálaráðherra, fangelsismálastjóra, nýjum lögreglustjóra Norðurlands eystra, bæjarstjóra og bæjarstjórn Akureyrarbæjar vegna fyrirhugaðrar lokunar fangelsisins á Akureyri. Hún telur að ekki muni nást sátt um málið.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem hún birti fyrir stuttu. Þar segir hún að stundum geti farið af stað heiftúðlegar umræður í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum, sem einkennist af hálfkveðnum vísum og röngum upplýsingum. Þó sé oft hægt að bæta úr því, skýra myndina og auka skilning með því að setjast niður og tala saman.

„Sú varð því miður ekki raunin í morgun. Ég varð enn svekktari eftir fundinn en fyrir hann, ferlið er í raun ekkert annað en óboðlegt. Ekkert samráð var haft við lögregluembættið hér né bæjarstjórn, gögnin takmörkuð og framtíðarsýnin ekki sannfærandi. Svo virðist sem fangelsismálin hafi verið skoðuð einangrað án þess að horfa til samlegðaráhrifa við starf lögreglunnar hér og hvað þá að tillit væri tekið til byggðasjónarmiða,“ skrifar Hilda Jana.

Segir hún það gamla sögu og nýja að óvinsælar ákvarðanir séu teknar í júlí, þegar sem flestir eru í sumarfríi og vilji frekar hlusta á fossanið og fuglasöng en pirra sig á pólitík.

„Það er ekki nóg með að ákvörðunin sé kynnt í byrjun júlí og eigi taka gildi í lok júlí, heldur var á þeim tíma var ekki búið að ráða nýjan lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, hún tók til starfa í gær!“

Hilda tekur þó fram að þó hún lýsi sig ósátta við þetta tiltekna mál, sé hún ánægð með fyrirætlanir Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra um að beita sér fyrir því að boðunarlistar í fangelsum verði styttir. Eins kveðst hún ánægð að ráðherrann hafi komið á fundinn og hlustað á það sem aðilar höfðu fram að færa.

„Ég bind enn vonir við að dómsmálaráðherra hætti við þessa ákvörðun eða a.m.k fresti henni og nýti tímann til að fara faglega og heilstætt yfir málið. Ég tel nokkuð ljóst að engin sátt verði um þessi málalok,“ skrifar Hilda Jana að lokum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×