Sport

FRÍ frestar mótum og varar við frekari röskun

Sindri Sverrisson skrifar
Hilmar Örn Jónsson setti mótsmet á Meistaramóti Íslands á Akureyri um síðustu helgi. Óvissa ríkir um frekara mótahald í sumar.
Hilmar Örn Jónsson setti mótsmet á Meistaramóti Íslands á Akureyri um síðustu helgi. Óvissa ríkir um frekara mótahald í sumar. mynd/frí

Frjálsíþróttasamband Íslands hefur frestað mótum vegna tilmæla um að íþróttaviðburðum verði frestað til 10. ágúst hið minnsta.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sagði á blaðamannafundi í dag að biðlað væri til íþróttahreyfingarinnar að fresta öllum íþróttaviðburðum til 10. ágúst.

FRÍ hugðist halda Meistaramót Íslands í fjölþraut, sem og MÍ öldunga, um þarnæstu helgi en þeim mótum hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

Í yfirlýsingu frá FRÍ er vakin athygli á því að um verulega röskun geti orðið að ræða á öllu mótahaldi það sem eftir sé ársins 2020. Iðkendur og aðildarfélög geti ekki gengið að því vísu að mótahald gangi eftir.

Enn er á dagskrá að bikarkeppni FRÍ, fyrir fullorðna sem og fyrir 15 ára og yngri, fari fram 15. ágúst. Mótin eiga að fara fram á Selfossvelli.

Tilkynning frá Frjálsíþróttasambandi Íslands:

Frjálsíþróttasamband Íslands vill í ljósi þeirra tilkynninga sem borist hafa frá stjórnvöldum, nú í lok júlí, um almanna- og sóttvarnir svo og samkomutakmarkanir s.s. 2 metra regluna vekja athygli á að um verulega röskun getur orðið að ræða er varðar mótahald í frjálsum íþróttum það sem eftir er ársins 2020. Endurskoðuð mótaskrá 2020 er því enn og aftur frekar til viðmiðunar í stað þess að aðildarfélög og iðkendur geti gengið að því vísu að mótahaldið gangi eftir s.s. stórmót í ágúst. Taka verður stöðuna á degi hverjum í ljósi aðstæðna og heimilda. Á sama hátt verður frjálsíþróttahreyfingin að búa sig undir að ársþingi FRÍ sem halda á í Hafnarfirði 11. og 12. september verði frestað fyrirvaralaust.

FRÍ vill einnig hvetja alla til að fara eftir og virða þær reglur sem settar hafa verið m.a. um gildandi samkomuhindranir og huga að því að virða þær leiðbeiningar sem settar eru fram um mótahald og æfingar íþróttafélaga.

FRÍ vill jafnframt minna á mikilvægi þess að aðildarfélögin sinni stjórnsýslu sinni t.d. rafrænt og haldi áfram ótrauð þrátt fyrir að skipulagt íþróttastarf raskist. Þá er mikilvægt að félögi haldi áfram að þjónusta sína iðkendur með þeim hætti sem mögulegt er.


Tengdar fréttir

Telur knattspyrnulið áfram geta æft

Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, telur að æfingar knattspyrnuliða geti farið fram með sama hætti og undanfarnar vikur þrátt fyrir hertar aðgerðir stjórnvalda vegna kórónuveirufaraldursins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×