Sport

„Ef við pössum ekki í íþróttina þá munum við breyta henni“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Megan Rapinoe er rödd nýjustu Nike-auglýsingarinnar.
Megan Rapinoe er rödd nýjustu Nike-auglýsingarinnar. Brad Smith/Getty Images

Íþróttavörurisinn Nike gaf frá sér auglýsingu á dögunum þar sem helstu íþróttastjörnur samtímans komu saman. Þar segir að ekkert geti stöðvað íþróttir og ef íþróttafólk passi ekki í tiltekna íþrótt þá muni það breyta henni.

Þú getur ekki stöðvað okkur er nýjasta herferð Nike og fór af stað 23. maí. Þann 30. júlí hélt herferðin svo áfram með auglýsingunni sem um er ræðir hér að ofan. 

Myndvinnsla auglýsingarinnar er rosaleg og reikna má með að auglýsingin hafi tekið sinn tíma. Þar eru tvinnuð saman ýmis íþróttaafrek síðustu ára hjá mörgu af magnaðasta íþróttafólki heims.

Þar ber helst að nefna LeBron James, Kylian Mbappé, Williams-systur þær Serenu og Venus ásamt Megan Rapinoe sem er einnig rödd auglýsingarinnar. 

Rapinoe á að baki 168 landsleiki fyrir Bandaríkin og vann Gullhnöttinn á síðasta ári sem og hún var valin leikmaður ársins kvenna megin af alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA.

Þá hefur Rapinoe vakið mikla athygli utan vallar fyrir baráttu sína gegn mismunun í bandarísku samfélagi sem og víðar. Snýst auglýsingarherferð Nike að miklu leyti um það og þau áhrif sem íþróttafólk getur haft.

„Það er skylda okkar að gera heiminn að betri stað,“ segir í ræðu LeBron og Rapinoe í myndbandinu en ræðurnar eru tvinnaðar saman.

„Við erum aldrei ein og það er styrkur okkar. Við spilum sem eitt ef það er efast um okkur. Þegar okkur er haldið aftur þá munum við fara lengra og fastar. Við munum afsanna spár ef við erum ekki tekin alvarlega. Ef við pössum ekki íþróttina þá munum við breyta henni,“ segir Rapinoe meðal annars í auglýsingunni.

„Það er skylda okkar að gera heiminn að betri stað,“ segir í ræðu LeBron og Rapinoe í myndbandinu en ræðurnar eru tvinnaðar saman.

„Við vitum að hlutirnir munu ekki alltaf falla með okkur. Sama hvað, við munum finna leið. Þegar hlutirnir eru ekki sanngjarnir munum við koma saman til að breyta þeim. Sama hversu slæmt það verður, við munum alltaf koma sterkari til baka. Af því ekkert getur stöðvað það sem við getum gert saman.“

Auglýsinguna má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×