Innlent

Mikil umferð gangandi fólks í Reykjadal

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Kristín Ólöf Steinþórsdóttir, landvörður í Reykjadal, sem hefur meira en nóg að gera að fylgjast með svæðinu og sjá til þess að allt gangi vel fyrir sig.
Kristín Ólöf Steinþórsdóttir, landvörður í Reykjadal, sem hefur meira en nóg að gera að fylgjast með svæðinu og sjá til þess að allt gangi vel fyrir sig. Magnús Hlynur Hreiðarsson.

Mörg hundruð manns hafa gengið Reykjadal fyrir ofan Hveragerði á hverjum degi í sumar en þar er einn fjölsóttasti náttúrulegi baðstaður landsins. Útlendingar hafa verið stór hluti þeirra sem hafa gengið leiðina í sumar sem er um tíu kílómetrar fram og til baka.

Reykjadalur er vinsæl gönguleið, sem hefur slegið í gegn í sumar því þar hefur verið örtröð alla daga frá því að fjöldi fólks mátti fara upp í 500 manns saman 15. júní en nú fækkar göngugörpunum eftir að talan var lækkuð niður í 100 manns. Merkt gönguleið um Reykjadal liggur upp úr Ölfusdal fyrir ofan Hveragerði en á leiðinni upp dalinn má sjá ólgandi hveri og reyk stíga upp úr jörðu.

„Það er alveg brjálað að gera, það er endalaust af fólki sem kemur á hverjum degi, mörg hundruð manns. Vinsældir leiðarinnar eru fyrst og fremst vegna læksins hérna því það er vinsælt að koma og fara í heita lækinn, þetta er líka mjög fallegur staður,“ segir Kristín Ólöf Steinþórsdóttir, landvörður í Reykjadal.

Margir ganga Reykjadalinn og nota þá tækifærið og skella sér í náttúrulegan baðstað á svæðinu og láta þreytuna þar með líða úr sér áður en gengið er til baka.Magnús Hlynur Hreiðarsson.

Kristín Ólöf segir að um helmingur gesta fari í lækinn og njóti þess að baða sig þar í stórbrotnu umhverfi Reykjadals. Hún segir að erlendir ferðamenn hafi verið mjög mikið að ferðinni í sumar.

„Já, það var bara strax 16.júní, þá voru hér strákar sem komu með fyrstu vél frá Kaupmannahöfn og beint hingað í Reykjadalinn, það var fyrsta stopp, það er mjög mikið af túristum hérna“.

Mikið af hjólreiðafólki fer líka um Reykjadal. „Já, það er mjög vinsælt hjá fjallareiðhjólafólki að koma hingað og ég vil koma ábendingu til þeirra að það er bannað að búa til nýja hjólreiðastíga en annars eru þeir velkomnir,“ segir Kristín Ólöf.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×