Innlent

Ekki útlit fyrir útbreitt samfélagslegt smit

Sylvía Hall skrifar
Frá upplýsingafundi í dag.
Frá upplýsingafundi í dag. Vísir/Einar

Fimm hundruð sýni voru tekin á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær og reyndust sjö vera jákvæð. Virk smit eru því 58 hér á landi og eru 454 í sóttkví.

Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna í dag. Hann segir helstu áskoranirnar vera tvær hópsýkingar sem hafa komið upp í samfélaginu undanfarna daga og það sé viðbúið að fleiri greinist með veiruna á næstu dögum.

Að sögn Þórólfs er útlit fyrir að heilbrigðisyfirvöld séu að ná tökum á hópsýkingunum þó ekki hafi tekist að rekja nokkur smit. Þrátt fyrir að fleiri einstaklingar hafi greinst með veiruna undanfarna daga virðist samfélagslegt smit ekki vera útbreitt. Það væri þó mikilvægt að fólk færi varlega.

„Við erum ekki alveg búin að ná tökum á þessu enn þá," sagði Þórólfur.

Einn liggur á spítala vegna kórónuveirusmits og er það fyrsta spítalainnlögnin frá því um miðjan maí.

Búist er við því að það taki um eina til tvær vikur að sjá árangur þeirra aðgerða sem tóku gildi á hádegi í gær. Með nýjum reglum er hámarksfjöldi samkoma hundrað manns og tveggja metra reglan svokallaða orðin að reglu á ný, en hún hafði verið viðmið undanfarnar vikur.

Þórólfur benti á að með haustinu koma upp fleiri veirusýkingar en það þyrfti þó að fara varlega. Alma Möller landlæknir beindi þeim tilmælum til heilbrigðisstarfsfólks að hafa lágan þröskuld fyrir sýnatöku og hleypa þannig fleirum að.


Tengdar fréttir

Sjö greindust með veiruna

Sjö greindust með kórónuveirusmit á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær.

Upplýsingafundur almannavarna

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar vegna faraldurs kórónuveiru klukkan 14:00 í húsakynnum landlæknisembættisins við Katrínartún. Fundurinn verður í beinni útsendingu hér á Vísi, Stöð 2 Vísi og á Bylgjunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×