Innlent

„Við megum ekki láta deigan síga“

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Hér má sjá heilbrigðisstarfsmann taka sýni úr Sævari Frey Þráinsyni, bæjarstjóra á Akranesi, í gær
Hér má sjá heilbrigðisstarfsmann taka sýni úr Sævari Frey Þráinsyni, bæjarstjóra á Akranesi, í gær Vísir/EInar

Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir Skagamenn finna fyrir létti eftir að allir greindust neikvæðir fyrir kórónuveirunni sem veldur covid-19 í skimun gærdagsins. Hann ítrekar þó mikilvægi þess að fólk gæti áfram ítrustu varúðar og fylgi leiðbeiningum um einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Mikill áhugi var fyrir skimuninni sem fram fór á Akranesi í gær og var að endingu fleirum boðið að taka þátt en upphaflega höfðu verið boðaðir með slembiúrtaki.

„Þetta eru mjög ánægjulegar fréttir fyrir okkur hér á Akranesi að engin af þessum 612 sem fóru í sýnatöku, það er bara alveg frábært,“ segir Sævar.

Tekin voru á bilinu 26 til 30 sýni á hverju korteri á meðan skimun stóð yfir á Akranesi í gær.Vísir/Einar

Hann sé afar ánægður með viðtökur bæjarbúa. „Það var bara einstakt að finna stemninguna og samheldnina í Skagamönnum sem mættu á svæðið og vildu sinna þessu samfélagslega verkefni. En það minnir okkur auðvitað á að þó að við höfum fengið góðar niðurstöður þá þarf áfram að sinna einstaklingsbundnum smitvörnum,“ segir Sævar. „Við megum ekki láta deigan síga og sinna þessu verkefni öll saman á Íslandi.“

Það sé mikill léttir að enginn hafi greinst sýktur. „Ég vil bara þakka Íslenskri erfðagreiningu, Kára og öllu hans frábæra fólki og heilbrigðisstarfsfólkinu sem að var að sinna þessu. Þetta er einstakt fólk sem er að vinna fyrir íslenskt samfélag á þessum afar sérstöku tímum,“ segir Sævar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×