Íslenski boltinn

KSÍ fundar með Almannavörnum á morgun: „Ekki víst að svörin verði á þá lund sem þeim langar til“

Ísak Hallmundarson skrifar
Knattspyrnuáhugafólk bíður nú óþreyjufullt eftir svörum frá Víði og Þórólfi varðandi framhald Íslandsmótsins og Evrópuleiki.
Knattspyrnuáhugafólk bíður nú óþreyjufullt eftir svörum frá Víði og Þórólfi varðandi framhald Íslandsmótsins og Evrópuleiki. vísir/vilhelm

Það var ekkert sérstaklega bjartsýnn tónn í Víði Reynissyni þegar hann var spurður út í hvernig málin standa varðandi knattspyrnuiðkun á landinu.

„Við fengum mjög ítarlegan spurningalista frá Knattspyrnusambandinu. Þeir eru að skoða alla möguleika á því hvernig þeir geti hagað starfseminni. Það er mikið undir hjá KSÍ, ekki bara Íslandsmótin, það eru Evrópukeppnir félagsliða og stórir landsleikir framundan,“ sagði Víðir Reynisson á upplýsingafundi almannavarna.

„Staðan er bara mjög óljós eins og er og erfitt að svara sumum spurningum sem þar hafa verið settar fram eins og fyrsti Evrópuleikurinn er 18. ágúst og síðan er landsleikir í lok ágúst og byrjun september. Meðan erum við að meta stöðuna frá degi til dags, við munum hitta forsvarsmenn KSÍ á morgun og vonandi getum við veitt svör við einhverjum af þeim spurningum sem þeir hafa, en það er ekki víst að þau verði öll á þá lund sem þeim langar til,“ ítrekaði Víðir.

Lítið svigrúm er fyrir frekari seinkun á Íslandsmótinu í fótbolta. Keppni átti að hefjast í lok apríl en var frestað þar til um miðjan júní. Pepsi Max deildirnar áttu síðan að klárast í lok október en nú er nokkuð ljóst að það dragist eitthvað fram í nóvember ef marka má orð Guðna Bergssonar formanns KSÍ. 

Þá sagði Víðir aðspurður að það væru ekki áhorfendur sem væru vandamálið, það væri tveggja metra reglan sem setur strik í reikning knattspyrnuiðkunar. „Það er hundrað manna samkomubann og leik­ir gætu farið fram ef það væri eina tak­markið. Það er tveggja metra reglan, þessi nánd og smit­varn­ir sem eru miklu meira hamlandi í þessu en hvort það geti verið áhorf­end­ur eða ekki.“

Eins og Víðir sagði á fundinum er ekki víst að KSÍ fái að heyra þau svör sem þau vilja á morgun og gæti mótið því verið í uppnámi.


Tengdar fréttir

Telur leikmenn tilbúna að gera það sem til þarf

Arnar Sveinn Geirsson, forseti Leikmannastamtaka Íslands og leikmaður Pepsi Max-deildarliði Fylkis segir leikmenn vera tilbúna til að gera það sem þarf svo hægt sé að klára Íslandsmótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×