Innlent

Synti án nærfata í Gjánni í Þjórsárdal

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Barbara Olguins frá Hellu, sem skellti sér í sund í Gjánni í öllum fötunum og sagði það hafa verið æðislegt.
Barbara Olguins frá Hellu, sem skellti sér í sund í Gjánni í öllum fötunum og sagði það hafa verið æðislegt. Magnús Hlynur Hreiðarsson.

Örtröð hefur verið um helgina í Þjórsárdal, ekki síst í Gjánni þar sem fólk naut náttúrufegurðar staðarins. Sumir brugðu á það ráð að synda í Gjánni á meðan tólf ára strákur stökk upp á borð og dansaði og söng fyrir viðstadda.

Það er mikil náttúrufegurð í Þjórsárdal og margir fengu þá hugmynd um að nýta verslunarmannahelgina til að skoða sig þar um enda veðrið frábært og allir nutu sín hvort sem farið var að bænum Stöng, gengið að Háafossi eða farið í Gjánna þar sem fossar og falleg náttúra umlykur allt.

„Þetta er svo fallegt land sem við eigum og það er gaman að sjá hvað það er mikið af Íslendingum hérna,“ segir Guðbjörg Bergsveinsdóttir íbúi á Selfossi, sem var með fjölskyldu sinni í Þjórsárdal.

Guðbjörg Bergsveindsóttir, sem var hæstánægð með fjölskylduferðina í Þjórsárdal um helgina í blíðskapar veðri.Magnús Hlynur Hreiðarsson.

Hjónin Ragnhildur Inga Guðbjartsdóttir og Steinar Ingi Matthíasson, sem búa í Brussel komu í frí til Íslands til að njóta og slaka á innan um íslenska náttúru.

„Þetta er bara magnað, mögnuð fegurð, hér er endalaus fegurð, ólíkt og stórbrotið. Hingað komum við til að fá innblástur, ekki spurning, sérstaklega af því að við búum erlendis, þetta er eins og vítamínsprauta, algjörlega,“ segja þau.

Hjónin Ragnhildur Inga Guðbjartsdóttir og Steinar Ingi Matthíasson sóttu sér innblástur í íslenska náttúru í Þjórsárdalnum þegar þau voru þar á ferðinni í gær með börnum sínum.Magnús Hlynur Hreiðarsson.

Það er nokkuð vinsælt að skella sér til sunds í Gjánni þó hún sé ísköld.

„Þetta var geggjað, þetta er bara yndislegt og yndislegur staður,“ segir Barbara Olguins íbúi á Hellu, sem skellti sér í sund í öllum fötunum. Hvernig stóð á því? „Ég er ekki í nærfötum því ég var líka að synda í Hjálparfossi, þannig að ég neyddist til að vera í fötunum í Gjánni,“ segir Barbara skellihlæjandi.

Baldur Björn, sem skemmti gestum í Þjórsárdal í gær með dansi og söng en hann er aðeins 12 ára gamall. Baldur Björn býr í Árbænum með fjölskyldu sinni.Magnús Hlynur Hreiðarsson.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×