Erlent

Segist vera í fullum rétti til að fá skatt­skýrslur Trump

Sylvía Hall skrifar
Cyrus Vance Jr. hefur farið fram á skattskýrslur Trump vegna rannsóknar á meintum mútugreiðslum.
Cyrus Vance Jr. hefur farið fram á skattskýrslur Trump vegna rannsóknar á meintum mútugreiðslum. Vísir/Getty

Saksóknarinn Cyrus R. Vance Jr. hefur krafist þess að fá skattskýrslur Trump undanfarin átta ár afhentar vegna gruns um „umfangsmikla og langvarandi saknæma háttsemi“ innan fyrirtækis hans. Tilkynnti hann dómara í dag að hann væri í fullum rétti til þess að krefjast gagnanna, en erfiðlega hefur gengið að fá skýrslurnar afhentar. AP greinir frá. 

Þar kemur fram að Vance hafi lítið gefið upp varðandi rannsókn sína en sagði þó hluta rannsóknarinnar beinast að meintum mútugreiðslum til kvenna gegn því að þær héldu ástarsamböndum sínum við forsetann leyndum. Fullyrtu lögmenn Vance að mótmæli lögmanna forsetans þess efnis að krafan væri of víðtæk væru byggð á röngum forsendum, enda krafðist saksóknarinn afhendingu vegna rannsóknar á mútugreiðslum.

Hæstiréttur hafnaði því fyrr í mánuðinum að forsetinn nyti algerrar friðhelgi fyrir rannsókn og opnaði þar með fyrir möguleikann á því að skattskýrslurnar yrðu gerðar opinberar. Dómurinn þýðir þó ekki að Trump þurfi að afhenda skattskýrslur sínar, að minnsta kosti ekki strax. Krafa saksóknara um skattskýrslurnar gætu velkst um fyrir dómstólum lengi enn, vel fram yfir kosningarnar sem fara fram í haust.

„Hver dagur sem líður er annar dagur þar sem [Trump] viðheldur „tímabundinni algerri friðhelgi“ sem þetta dómstig, áfrýjunardómstóll og Hæstiréttur hafnaði,“ sögðu lögmenn Vance um málið. Sögðu þeir jafnframt töfina auka líkur á því að sönnunargögn myndu tapast eða málin myndu fyrnast.

Rannsókn saksóknarans beinist meðal annars að því hvernig Michael Cohen, fyrrum lögmaður Trump, kom í veg fyrir að klámstjarnan Stormy Daniels og fyrirsætan Karen McDougal stigu fram með sögur af ástarsamböndum sínum við forsetann. Cohen var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir brot á kosningalögum, skattsvik og fyrir að hafa logið að rannsóknarnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.


Tengdar fréttir

Hæstiréttur úrskurðaði gegn forsetanum

Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í dag að forseti njóti algerrar friðhelgi fyrir sakamálarannsókn. Úrskurðurinn opnar möguleikann á að saksóknarar í New York fái skattskýrslur Donalds Trump forseta afhentar.

Biðlar til Hæstaréttar til að verja skattskýrslur sínar

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur farið fram á að Hæstiréttur landsins komi í veg fyrir að saksóknarar fái aðgang að skattskýrslum hans. Málið þykir markvert fyrir margar sakir og er talið muna reyna verulega á völd forsetans, stjórnarskrána og stöðu dómstólsins sjálfs.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×