Skoðun

Grænn gróði

Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Ísland hefur einstakt tækifæri til að vera í fremstu röð í grænmetisframleiðslu. Ef til vill kemur það fólki á óvart sem skoðar landakort. En það er einmitt staða Íslands á landakortinu sem gerir þennan möguleika mögulegan. Heimili okkar er nefnilega full af vatni, köldu og heitu. Og orkan er næg, þótt hún sé alltof dýr fyrir grænmetisbændur.

Eftirspurn eftir heilnæmu grænmeti, ávöxtum og korni hefur aukist mikið um allan heim og mun aukast verulega á næstu árum. Hér er því á ferðinni dauðafæri fyrir Ísland. Þetta tækifæri er einstakt, nýtir kosti Íslands á sjálfbæran hátt, er atvinnuskapandi, mætir breyttri neysluhegðun og er umhverfisvænt á tímum loftslagsbreytinga.

Til að hægt sé að nýta sér þetta tækifæri þurfa stjórnvöld að koma að uppbyggingunni með auknum opinberum stuðningi. Lækka ætti verð á rafmagni, flutningskostnaði og á öðrum kostnaði. Slíkur stuðningur þarf að vera gagnsær og almennur en umfram allt myndarlegur. Í hagfræðinni höfum við mikla trú á hinum svokölluðum hagrænum hvötum en þá vantar hér í mun meiri mæli þegar kemur að hinu græna.

Gerum þetta að atvinnustefnu

Nákvæmlega núna er verið að búa til í reykfylltum bakherbergjum ráðherra núverandi ríkisstjórnar nýja fimm ára fjármálaáætlun fyrir hið opinbera. Um er að ræða yfir 5.000 milljarða kr. áætlun. Takið eftir, að ég er að tala um milljarða hér en ekki milljónir. Eitthvað fara þessir peningar í. Þess vegna er þetta rétti tíminn til að koma með framsæknar hugmyndir sem taka mið af framtíðinni en ekki fortíðinni.

Umfangsmikil grænmetisframleiðsla hér á landi ætti að vera hluti af atvinnustefnu hins opinbera. Þetta ætti einnig að vera hluti af vel hugsuðu fjárfestingarátaki stjórnvalda en ekki sem smátt hliðarverkefni sem fær að fljóta með, ef ráðherrar muna eftir því. Það sem hefur verið gert hingað til er því miður svo lítið að það skiptir of litlu máli.

Fjórföldum grænmetisframleiðslu

Nýverið var kynnt áætlun stjórnvalda að auka framleiðslu af grænmeti um 25% á næstu þremur árum og voru settar litlar 200 milljónir kr. til viðbótar við þær 600 m kr. sem fara í framleiðslu garðyrkjuafurða. Þetta er einfaldlega allt of lítið og metnaðarlaust.

Við eigum frekar að setja okkur það markmið að fjórfalda grænmetisframleiðslu hér á landi á næstu árum í stað þess að auka hana aðeins um fjórðung eins og vilji núverandi stjórnvalda er. Til samanburðar eru 200 milljónir kr. viðbót núverandi stjórnvalda svipuð upphæð og ríkið setur í styrki til fiskvinnslustöðva á ári og er einnig aðeins einn tíundi af því sem stjórnvöld kjósa að eyða í varnarmál á hverju ári. Um 12.000 milljónir renna hins vegar frá almenningi í nautgripa- og sauðfjárrækt á hverju ári og er því stuðningurinn fyrir garðyrkjuafurðir einungis 5% af þeirri upphæð. Hvað er grænt við það?

Hið græna í stað hið ferfætta

Búvörusamningar framtíðarinnar eiga að snúast um hið græna en ekki hið ferfætta. Við þurfum að hjálpa bændum að breyta framleiðslu sinni í þessa átt. Við eigum að styðja fleiri nýja bændur sem starfa í grænum framleiðsluheimi. Það má vel hugsa sér að Ísland verði útflytjandi af garðyrkjuafurðum en ekki innflytjandi. Vegna sjávarins umhverfis landið er Ísland matvælaland á heimsmælikvarða á sviði sjávarútvegs. Víkkum þessa hugmynd út og látum hana ná yfir grænmetið sem þarf orku, jarðvarma, ylrækt og vatn en af því eigum við nóg.

Það getur kostað peninga að búa til peninga. Það kostar að hugsa stórt en það borgar sig, ef það er skynsamlegt. Fjórföldun grænmetisframleiðslu er skynsamleg hugmynd. Eina sem hindrar okkur er metnaðarleysi ríkisstjórnarinnar. Við þurfum að vaxa upp úr þessari kreppu sem við erum í. Sá vöxtur á að vera grænn og vænn. Og ekki er verra, ef við getum borðað hann.

Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður Samfylkingarinnar



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×