Viðskipti erlent

Allt sem Samsung kynnti í gær

Samúel Karl Ólason skrifar
Nýir símar, spjaldtölvur, úr og heyrnartól. Þetta var kynnt á kynningu Samsung í gær.
Nýir símar, spjaldtölvur, úr og heyrnartól. Þetta var kynnt á kynningu Samsung í gær. Vísir/Samsung

Samsung kynnti fjölda nýrra snjalltækja á árlegum viðburði fyrirtækisins í gær, Samsung Unpacked, sem að þessu sinni fór alfarið fram á netinu. Þar voru kynntir nýir snjallsímar sem Samsung segir þá öflugustu sem fyrirtækið hafi framleitt. Einnig voru kynntar nýjar spjaldtölvur, snjallúr og heyrnartól.

Hér að neðan verður stiklað á stóru og farið yfir kynninguna í gær.

Símarnir eru fyrstir. Þar voru kynntir Samsung Galaxy Note 20, Note Ultra, og Galaxy Z Fold 2.

Z Fold 2 síminn er önnur kynslóð samanbrjótanlegra síma Samsung en sú fyrsta lenti í miklum vandræðum í upphafi vegna ýmissa galla og verðs. Síminn náði aldrei flugi.

Sjá einnig: Segjast hafa selt milljón Fold-síma

Nú virðist sem að búið sé að bæta ýmsa þessa galla en vert er að taka fram að tækniblaðamenn ytra hafa ekki fengið að grandskoða símann enn. Skjárinn framan á símanum fyllir nú upp í allan rammann en ekki helminginn ein sog síðast, sem er mikil bót. Þá er stóri skjárinn stærri og síminn sjálfur er þynnri og búið er að minnka bilið á milli skjáanna þegar hann er samanbrotinn.

Einnig er búið að gera endurbætur á skjánum sjálfum og er hann ekki eingöngu úr plasti eins og síðast. Samkvæmt umfjöllun Ars Technica er síminn með sambærilegan skjá og Galaxy Z Flip, sem er blanda af plasti og gleri.

Hér að neðan má sjá tvö myndbönd frá Samsung. Annað þar sem meðlimir hljómsveitarinnar BTS skoða Fold 2 síma og annað sem sýnir sérstaka útgáfu símans og útlit hennar. Þar að neðan má svo sjá umfjöllun CNet um símann.

Galaxy Note 20 símarnir eru öflugustu símar sem Samsung hefur framleitt, samkvæmt fyrirtækinu sjálfu, og búa yfir bestu myndavélum sem settar hafa verið í síma Samsung, aftur, samkvæmt fyrirtækinu sjálfu.

Báðir símarnir eru mjög öflugir og Ultra töluvert öflugri en hefðbundni síminn. Þá lítur Ultra síminn öðruvísi út. Note 20 er ekki með beygðan skjá í hliðunum, eins og síðustu Notesímar og er síminn þar að auki þakinn gleri en ekki plasti.

Hér á Íslandi munu símarnir kosta 200 til 250 þúsund krónur.

Hér að neðan má sjá nokkur myndbönd um símana frá Samsung og svo umfjöllun CNet.

Galaxy Watch 3

Samsung kynnti nýjustu útgáfu snjallúra fyrirtækisins í gær, Galaxy Watch 3. Úrið verður gefið út í tveimur útgáfum. Skjárinn hefur verið stækkaður á stærri útgáfunni en þrátt fyrir það er úrið samt þynnra og léttara en fyrri útgáfur.

Úrin hafa verið endurhönnuð og koma í þremur litum. Mystic Bronze, Mystic Silver og Mystic Black. Úrin sjálf eru úr ryðfríu stáli og ólarnar úr leðri. Þó er hægt að fá stærri útgáfu í svörtum lit og úr títaníum.

Hér að neðan má sjá mynband frá Samsung og svo umfjöllun CNet um úrin.

Samsung hefur endurhannað þráðlaus heyrnartól fyrirtækisins sem kallast nú Galaxy Buds Live. Þau eru í laginu eins og baunir. Þau eru hljóðeinangrandi en þó aðeins að hluta til. Þeim er eingöngu ætlað að einangra lágtíðnihljóð eins og umhverfishljóð í flugvélum.

Rafhlöður heyrnartólanna eiga að duga í sex til átta klukkustundir, eftir notkun, og er hægt að nota þau með Bixby, talgervli Samsung.

Hér að neðan má sjá myndband frá Samsung og kynninguna frá því í gær.

Samsung kynnti tvær útgáfur af nýjum spjaldtölvum í gær. Galaxy Tab S7 og S7 Plus. Eins og nafnið gefur til kynna er Plus-útgáfan stærri og öflugri en sú hefðbundna. S pennar fylgja báðum útgáfunum og er einnig hægt að kaupa lyklaborð svo hægt sé að nota þær eins og hefðbundnar spjaldtölvur.

Skjáir spjaldtölvanna eru 11 tommur annars vegar og 12,4 tommur hins vegar. Samkvæmt umfjöllun Verge er S7 Plus með OLED skjá en smærri útgáfan með hefðbundin LCD skjá.

Hér að neðan má sjá kynningu spjaldtölvanna frá því í gær.


Tengdar fréttir

Bein útsending: Nýjum tækjum Samsung lekið fyrir kynningu

Starfsmenn Samsung ætla að kynna nýjustu tæki tæknirisans á sérstakri kynningu sem kallast Samsung Unpacked 2020 í dag. Myndum og myndböndum af tækjunum sem til stendur að kynna hefur þó þegar verið lekið á netið.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×