Sport

Davíð og Konráð fögnuðu sigri

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Konráð Valur með verðlaun sín
Konráð Valur með verðlaun sín Meistaradeildin/Gunnar Freyr

Davíð Jónsson á Irpu frá Borgarnesi fagnaði sigri í gæðingaskeiði eftir spennandi keppni með 7,83 í einkunn. Jóhann Kristinn Ragnarsson á Þórvöru frá Lækjarbotnum var með sömu einkunn í 2. sæti en þegar knapar eru jafnir í í 1. og 2. sæti í gæðingaskeiði ráða einkunnir dómara og því stóð Davíð uppi sem sigurvegari. 

Í 3. sæti var Konráð Valur á Kjarki með 7,54 í einkunn. Lið Hestvit / Árbakka hlaut liðaskjöldinn fyrir gæðingaskeiðið en liðsmenn eru Jóhann (2. sæti), Hinrik Bragason (5. sæti) og Gústaf Ásgeir Hinriksson (15. sæti).

Konráð Valur Sveinsson vann svo 150 metra skeiðið á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II með besta tíma gærdagsins, 14,17 sekúndum. Tíminn náðist í 4. spretti þeirra í gær en þeir kepptu fyrir lið Top Reiter.

Í 2. sæti var Sigurður Sigurðarson á Drift frá Hafsteinsstöðum á 14,92 sekúndum en hann er liðsmaður Gangmyllunnar. Í þriðja sæti var svo Davíð Jónsson á Glóríu frá Skógskoti á 15,05 sekúndum, þau keppa fyrir lið Eques/Kingsland.

Lið Hjarðartúns hlaut liðaskjöldinn í greininni. Tveir liðsmenn voru í topp tíu og sá þriðji í 11. sæti, Hans Þór Hilmarsson (4.sæti), Þórarinn Ragnarsson (9.sæti) og Jakob S. Sigurðsson.

Hjarðartún og Jakob Svavar leiða fyrir lokamótið

Hjarðartún er með nokkuð góða forustu í liðakeppninni með 300 stig, 54,5 stigum á undan næsta liði, Hrímnis / Export hesta. Lið Hestvit/Árbakka átti góðan dag í gær og náði að færa sig úr fimmta sætinu í það þriðja með 235,5 stig.

Jakob Svavar Sigurðsson er enn efstur í einstaklingskeppninni með 37 stig. Viðar Ingólfsson er í öðru sæti en hann náði að minnka muninn um tvö stig í dag og munar nú 14 stigum á þeim félögum. Í þriðja sæti eru þau jöfn Elin Holst, Davíð Jónsson og Konráð Valur með 20 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×