Golf

Tiger rétt náði í gegnum niðurskurðinn

Ísak Hallmundarson skrifar
Tiger náði ekki að fylgja eftir góðum fyrsta hring í gær. 
Tiger náði ekki að fylgja eftir góðum fyrsta hring í gær.  getty/Harry How

Öðrum hring PGA meistaramótsins í golfi, sem fram fer á Harding Park í Kaliforníu, lauk þegar klukkan var farin að ganga þrjú á íslenskum tíma í nótt. 

Tiger Woods sem byrjaði vel á fyrsta hring náði sér ekki á strik í gær. Hann endaði hringinn á 72 höggum, tveimur yfir pari, og er samanlagt á pari vallarins eftir þessa fyrstu tvo hringi. Niðurskurður er ávallt eftir tvo daga og í þetta sinn miðaðist hann við eitt högg yfir pari. Tiger mun því halda áfram keppni um helgina. 

Með Tiger í ráshóp voru þeir Justin Thomas og Rory McIlroy. Eftir hæga byrjun náði McIlroy fjórum fuglum í röð á 7. - 10. holu. Hann fékk hinsvegar sjaldséðan þrefaldan skolla á 12. holu og endaði hringinn á einu höggi undir pari, einu höggi betra en fyrri daginn. Justin Thomas var í mikilli hættu á að missa af helginni þegar hann fékk sinn þriðja tvöfalda skolla á tveimur hringjum og var þá samanlagt á +2 í mótinu. Hann náði hinsvegar að setja niður fuglapútt á 16. flöt til að koma sér niður í eitt högg yfir par og verður með um helgina.

Kínverjinn Haotong Li er efstur fyrir daginn í dag á átta höggum undir pari. Sex kylfingar eru í öðru sæti á sex höggum undir pari, þar á meðal Brooks Koepka, sigurvegari síðustu tveggja ára á PGA meistaramótinu. 

Bein útsending frá mótinu hefst kl. 20:00 í kvöld á Stöð 2 Golf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×