Íslenski boltinn

KR mætir Celtic í Meistaradeildinni

Ísak Hallmundarson skrifar
KR á verðugt verkefni fyrir höndum.
KR á verðugt verkefni fyrir höndum. getty/Harold Cunningham

Íslandsmeistarar KR munu mæta Skotlandsmeisturum Celtic í forkeppni Meistaradeildar Evrópu en dregið var í morgun.

Leikurinn fer fram 18. eða 19. ágúst og verður líklegast á Celtic Park í Skotlandi, en gæti þó farið fram á hlutlausum velli. Aðeins einn leikur er leikinn í hverri viðureign þetta árið.

KR og Celtic hafa mæst áður en síðast var það árið 2014 þegar skoska liðið vann 5-0. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×