Enski boltinn

Talið að Chelsea hafi náð samkomulagi við Havertz

Ísak Hallmundarson skrifar
Kai Havertz er sennilega á leið til Chelsea.
Kai Havertz er sennilega á leið til Chelsea. getty/Marius Becker

Kai Havertz hefur samþykkt fimm ára samning við Chelsea og er bjartsýni á að Chelsea og Leverkusen nái samkomulagi um kaupverð. Þetta hefur Daily Mail eftir RMC Sport.

Havertz er 21 árs gamall og getur spilað stöðu bæði sóknarsinnaðs miðjumanns og vængmanns. Chelsea hefur leitt kapphlaupið um hann og er nú nálægt því að klára kaupin.

Leverkusen hafa sagst ekki ætla að gefa neinn afslátt af kaupverði vegna Kórónuveirufaraldursins. Þeir vilja fá 90 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Chelsea var í félagsskiptabanni í fyrra en hafa farið mikinn á markaðinum í ár og nú þegar gengið frá kaupum á Timo Werner og Hakim Ziyech.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×