Innlent

Þurfti að gista inn í skála í Básum vegna vatnavaxta

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Há vatnsstaðar er í ám og lækjum vegna úrkomu síðasta sólarhringinn á vestanverður landinu. Auknar líkur eru á grjóthruni og skriðum.
Há vatnsstaðar er í ám og lækjum vegna úrkomu síðasta sólarhringinn á vestanverður landinu. Auknar líkur eru á grjóthruni og skriðum.

Talsverðri úrkomu er spáð á Suður- og Vesturlandi í dag og útlit fyrir vatnavexti í ám og lækjum. Skálavörður í Básum segir að rignt hafi linnulaust frá því í fyrradag og að nánast ófært sé á svæðinu.

Sökum rigningatíðar undanfarna daga er há vatnsstaða fyrir í mörgum ám og lækjum. Veðurstofa Íslands varar við grjóthruni og skriðuföllum á suður- og vesturlandi. Ferðafólk er beðið um að sýna sérstaka aðgát við vatnsföll, vöð og undir bröttum brekkum. Margar ár á svæðinu eru illfærar.

„Það er enn þá mikið í ánum en farið að sjatna heldur í þeim, það tekur einhvern tíma fyrir þær að ná fyrra jafnvægi þannig að það verður áfram mikið í þeim og er enn varasamt að fara yfir vöð“

Segir Arnór Tumi Jóhannsson, veðurfræðingur, sem bendir á að þetta eigi sérstaklega við um sunnanvert hálendið og Vesturland.

„Ég veit til þess að fólk hafi lent í vandræðum við árnar á leiðinni inn í Þórsmörk. Annars á þetta við um þessar ár sem eru í kringum þessar helstu ferðaleiðir og gönguleiðir á sunnanverðu hálendinu“

Þóra Björg Ragnarsdóttir, skálavörður í Básum á Goðalandi tekur undir þetta og lýsir aðstæðum í Þórsmörk.

„Það byrjaði að rigna seinni part fyrradags og rigndi bara sleitulaust þangað til í morgun. Það hafa verði miklir vatnavextir, Hvannáin er kannski stærsta hindrunin hingað inn eftir núna og svo er Krossáin er ófærð, traktorinn er ekki að fara yfir úr Langadal sem segir svolítið mikið“

Þóra bauð ferðamanni í vanda á tjaldstæðinu gistingu skálanum í nótt.

„Hann lá eiginlega bara í polli,“ segir Þóra og bætti við að umræddur ferðamaður hefði þegið boð hennar með þökkum.

Þrátt fyrir að veður fari skánandi mælir hún ekki með ferðum um svæðið.

„Nema þá bara á breyttum bílum. Ég væri ekki að leika mér að fara hingað, árnar eru það þungar.“


Tengdar fréttir

Vætu­samt vestan­til á landinu

Veðurstofan spáir suðlægri átt og víða dálítilli vætu sunnan- og vestanlands, en björtu með köflum norðaustan til.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×