Innlent

Á tvítugsaldri á sjúkrahúsi og íhuga að taka upp eins metra fjarlægðarmörk í skólum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá þessu í dag.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá þessu í dag. Vísir/Vilhelm

Þrír einstaklingar eru sem stendur á sjúkrahúsi með kórónuveirusmit. Þeim hefur því fjölgað um einn síðastliðinn sólarhring og segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að þar hafi verið um að ræða einstakling á tvítugsaldri. Sá er þó ekki í öndunarvél að sögn Þórólfs. Þá er til skoðunar að taka upp „eins metra reglu“ í ákveðnum aðstæðum og opna á knattspyrnuiðkun.

Einn sjúklingur nýtur aðstoðar öndunarvélar sem stendur og alls hafa fjórir þurft á sjúkrahúsaðstoð að halda í þessari lotu faraldursins. 

Seinni skimun til skoðunar

Þórólfur sagði á fundi almannavarna í dag að til skoðunar væri að breyta fyrirkomulagi hinnar svokölluðu seinni skimunar. Þeir einstaklingar sem hafa víðtækt tengslanet hér á landi eða dvelja hér lengur en í 10 daga hafa þurft að fara í tvær skimanir, eina við komuna til landsins og þá síðari að 4 til 6 dögum liðnum. 

Þetta var gert því að tveir einstaklingar höfðu greinst neikvæðir við landamæraskimun en komu upp með smit nokkrum dögum síðar og smituðu út frá sér. Rúmlega 8000 einstaklingar hafa nú farið í sýnatöku tvö en aðeins tveir einstaklingar greinst með virkt smit. Því er til skoðunar hvort tilefni sé að breyta þessu fyrirkomulagi, en Þórólfur segir að því fylgi mikið álag. 

Eins metra regla í skólum

Þórólfur ræddi jafnframt um minnisblað sitt sem hann hyggst senda heilbrigðisráðherra um framhald aðgerða vegna veirunnar, bæði hvað varðar fyrirkomulag landamæraskimunar og hafta innanlands. Þá sé jafnframt til skoðunar að taka upp eins metra nálægðartakmörk undir ákveðnum kringumstæðum, t.d. í skólum, en láta tveggja metra regluna gilda áfram annars staðar.

Máli sínu til stuðnings nefndi Þórólfur að í Noregi gildi eins metra fjarlægðarmörk, sums staðar séu mörkin á bilinu 1,5 til 1,8 metrar. Talað sé um að eins metra fjarlægð minnki líkur á smiti fimmfalt en fyrir hvern metra aukalega minnki líkurnar á smiti tvisvar sinnum. Það sé því til skoðunar að taka upp eins metra regluna á ákveðnum stöðum.

Opna á knattspyrnu

Þórólfur sagði jafnframt að til skoðunar sé að leyfa aftur íþróttir með snertingu, eins og knattspyrnu. Það myndi þá koma fram í umræddu minnisblaði. Þórólfur sagði þó að mikilvægt væri að sjá fyrir endann á þessum faraldri áður en almennt verður hægt að marki á þeim takmörkunum sem nú eru í gildi. Hann telur þó ekki tilefni til að herða reglur á þessari stundu.


Tengdar fréttir

Bein útsending: Upplýsingafundur almannavarna

Boðað hefur verið til upplýsingafundar í dag vegna kórónuveirufaraldursins. Þetta er hundraðasti fundurinn sem almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa haldið frá því í lok febrúar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×