Innlent

Fengu 20 stunda fyrirvara um að leikskólinn opni viku eftir áætlun

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Leikskólinn Langholt verður lokaður í tæpa viku til viðbótar.
Leikskólinn Langholt verður lokaður í tæpa viku til viðbótar. ja.is

Opnun leikskólans Langholts við Sólheima í Reykjavík hefur verið frestað um sex daga. Til stóð að leikskólinn myndi opna klukkan 13 á morgun en sökum þess að framkvæmdir í húsnæðinu drógust á langinn er stefnt að opnun á mánudag í næstu vikum.

Foreldri barns á Langholti sem fréttastofa ræddi við segir þessa breytingu koma illa við sig. Fyrirvarinn sé stuttur, aðeins um 20 klukkustundir, og þar að auki séu foreldrarnir báðir í hópi þeirra sem eru búin með sumarleyfið sitt.

Framkvæmdirnar hófust fyrir sumarfrí og fyrir vikið þurfti hluti barnanna að vera í færanlegum kennslustofum á tímabili, en alls eru um 160 börn á Langholti. Stefnt var að því að framkvæmdum lyki áður en skólastarfið hæfist aftur núna í þessari viku - „en því miður ganga hlutirnir ekki alltaf eins og gert er ráð fyrir,“ segir Valborg Guðlaugsdóttir skólastjóri í bréfi til foreldra nú síðdegis.

„Gert í algjörri neyð“

„Þrátt fyrir mikla vinnu og vilja þeirra sem að framkvæmdunum komu er þeim ekki lokið. Upp kom í ferlinu að það þyrfti að gera meira en áætlað var í upphafi,“ skrifar Valborg. Meðal þess sem er útistandandi séu framkvæmdir við starfsmannasalerni og starfsmannarými sem bæði sé ónothæft. Fyrir vikið sé ekki hægt að opna leikskólann á morgun, 11. ágúst, eins og til stóð heldur verður Langholt þess í stað opnað að morgni mánudagsins 17. ágúst.

Valborg segir að sé þyki mjög leitt að þessar upplýsingar skuli berast svona seint, aðeins degi fyrir að foreldrar höfðu áætlað að leikskólastarf hæfist að nýju. „Við vildum gera allt sem hægt væri áður en gripið yrði til þess að fresta opnun,“ skrifar Valborg. „Nú um helgina var t.d. áætlað að vinna ákveðna verkþætti sem því miður gengu ekki eftir og því varð þetta ekki að fullu ljóst fyrr en í dag.“

Þá hafi komið upp sú hugmynd að flytja öll börnin 160 í Langholtsskóla, en það hafi ekki verið talið vænlegt. Þar að auki setji kórónuveiran strik í reikninginn. Núverandi aðstæður voru ekki taldar geta boðið upp á viðunandi sóttvarnir eða geta tryggt fjarlægðarmörk á milli fólks.

„Þetta er gert í algjörri neyð og eftir mikla yfirlegu, ég lofa ykkur því,“ skrifar Valborg til foreldra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×