Lífið

Banderas smitaður af kórónu­veirunni og fagnar sex­tugs­af­mælinu í ein­angrun

Andri Eysteinsson skrifar
Antonio Banderas er sextugur í dag.
Antonio Banderas er sextugur í dag. Getty/Zorrakino

Spænski stórleikarinn Antonio Banderas hefur greint frá því að hann hafi greinst með kórónuveiruna og mun fagna sextugasta afmælisdegi sínum í einangrun. AP greinir frá.

Banderas greindi frá fréttunum í færslu á Instagramsíðu sinni í dag á afmælisdaginn sjálfan. Sagði leikarinn að hann myndi grípa í bók á meðan að hann sætir einangrun og sagðist einnig ætla að lesa og skipuleggja sextugasta og fyrsta aldursárið.

„Ég vil bæta því við að ég er við góða heilsu, bara örlítið þreyttari en vanalega. Ég vonast til þess að ná bata eins fljótt og ég get og mun fylgja leiðbeiningum lækna og mun ná mér af veirunni sem herjar á mig og fleiri jarðarbúa,“ skrifaði Banderas sem fæddist í Malaga á Spáni 10. ágúst 1960.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×