Viðskipti erlent

Xbox Series X í hillur í nóvember

Samúel Karl Ólason skrifar
XboxSeriesXHERO

Xbox Series X, nýjasta leikjatölva Microsoft, mun birtast fyrst í hillum verslana í nóvember. Búið var að gera ráð fyrir því að Microsoft og Sony, framleiðandi Playstation, myndi keppast um hylli töluvleikjaspilara og annarra í aðdraganda jólanna og hefur það nú verið staðfest að hálfu Microsoft.

Sony hefur ekki gefið upp hvenær Playstation 5 mun líta dagsins ljós og ekki liggur fyrir hvað leikjatölvurnar munu kosta.

Skömmu áður en útgáfa Xbox var tilkynnt, tilkynntu framleiðendur Halo Infinite, leiks sem margir bíða eftir, að útgáfu hans yrði frestað.

Í tilkynningu Microsoft segir að notendur leikjatölvanna muni hafa aðgang að þúsundum leikja sem spanni allar fjórar kynslóðir leikjatölva fyrirtækisins.

Þar auki séu rúmlega 50 leikir að koma út á þessu ári fyrir Series X. Bæði nýir leikir og eldri leikir sem hafa verið uppfærðir með getu nýju leikjatölvunnar í huga.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×