Viðskipti innlent

Kolfinna til SSNV

Atli Ísleifsson skrifar
Kolfinna Kristínardóttir
Kolfinna Kristínardóttir

Kolfinna Kristínardóttir hefur verið ráðin til Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) sem atvinnuráðgjafi með áherslu á nýsköpun.

Í tilkynningu kemur fram að Kolfinna sé með MA gráðu í hagnýtri menningarmiðlun og BS-próf í ferðamálafræði.

„Hún setti upp Matarhátíð í Skagafirði í tengslum við meistaraverkefni sitt þar sem áhersla var lögð á nýsköpun í matarmenningu og kynningu á skagfirsku hráefni og framleiðslu. Kolfinna hefur stjórnenda- og rekstrarreynslu úr störfum sínum hjá Wow Air auk þess sem hún hefur sinnt stjórnunarstörfum í ferðaþjónustu. Meginstarfsstöð Kolfinnu verður á Sauðárkróki en hún mun líkt og aðrir ráðgjafar samtakanna vinna með aðilum á Norðurlandi vestra öllu.

Með ráðningu atvinnuráðgjafa með nýsköpun með sérsvið er verið að auka áherslu á þennan mikilvæga þátt til aukinnar verðmætasköpunar í landshlutanum. Er það í takt við áherslur í Sóknaráætlun Norðurlands vestra fyrir árin 2020-2024.

Í áætluninni er meðal annars lögð áhersla á fullvinnslu afurða sem framleiddar eru á svæðinu, fjölgun vaxtarbrodda sem og styrkingu grunnstoða í atvinnulífinu, svo sem í ferðaþjónustu, landbúnaði og sjávarútvegi,“ segir í tilkynningunni, en Kolfinna mun hefja störf þann 1. september næstkomandi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×