Fótbolti

Þeir hörðustu ætla hvorki að styðja né syngja fyrir nýjasta sam­herja Ragnars

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kamil Wilczek í treyju FCK.
Kamil Wilczek í treyju FCK. mynd/fck.dk

Það hefur mikið gengið á í danska boltanum að undanförnu og þá sér í lagi FCK, eftir að liðið tilkynnti um komu Kamil Wilczek til félagsins.

FCK datt út úr Evrópudeildinni í fyrrakvöld eftir hetjulega baráttu gegn Manchester United. Vítaspyrna í framlengingu tryggði enska stórliðinu sigur.

Það hefur þó meira verið rætt um það sem gerðist hjá FCK í síðustu viku en þá tilkynnti FCK að þeir hefðu skrifað undir þriggja ára samning við framherjann Kamil Wilczek.

Pólski framherjinn lék með erkifjendum FCK í Bröndby á árunum 2016 til 2020 þar sem hann raðaði inn mörkum og var m.a. fyrirliði félagsins.

Mikill hiti hefur verið í stuðningsmönnum Bröndby eftir skiptin og hafa þeir m.a. brennt treyjur Wilczek og rifið niður nafn hans utan af leikvangi liðsins.

Það eru ekki bara stuðningsmenn Bröndby sem eru reiðir því hluti af harðasta stuðningsmannahóp FCK líst ekkert á blikuna; að félagið hafi skrifað undir samning við leikmann sem lék svo lengi með erkifjendunum.

Hluti hópsins senti svo frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þeir segja að þeir muni hvorki syngja né styðja við bakið á framherjanum. Nefndu þeir frekar unga leikmenn FCK sem ættu að fá tækifærið.

„Enginn stuðningur, engir söngvar frá okkur til nýja leikmannsins númer níu. Wind, Daramy, Kaufmann og svo framvegis eru framtíðin,“ segir í yfirlýsingunni frá hópnum sem er syngjandi og trallandi bak við annað markið allan ársins hring.

FCK endaði í 2. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð sem eru vonbrigði þar á bæ.

Ragnar Sigurðsson er á mála hjá FCK en á dögunum framlengdi hann samning sinn við félagið til næsta sumars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×