Bílar

Hybrid Ferrari með V6 vél sást á Fiorano

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nýr Ferrari sem hugsanlega býr yfir Formúlu 1 tækni.
Nýr Ferrari sem hugsanlega býr yfir Formúlu 1 tækni.

Hybrid tækni eða tvinn-tækni hefur verið hluti af Formúlu 1 síðan 2014. Ferrari er eitt sögufrægasta liðið í Formúlu 1 og nú hefur nýr Ferrari götubíll sést bruna um Fiorano braut Ferrari liðsins. Mögulega er um að ræða ofurbíl sem býr yfir Formúlu 1 tækni.

Árið 2014 voru vélarnar í Formúlu 1 færðar meira í þá átt að verða alvöru tvinn vélar, þar sem rafmagnið hefur þónokkuð vægi á móti sprengihreyflinum. Þær urðu sex strokka, 1,6 lítra og með forþjöppu.

Nú hefur náðst myndband af götubíl af Ferrari gerð, aka um Fiorano brautina rétt fyrir utan Maranello á Ítalíu sem er heimabær Ferrari. Brautin var smíðuð 1972 sem æfingabraut fyrir Formúlu 1 lið Ferrari. Nú þegar æfingar í Formúlu 1 eru afar takmarkaðar þá er hún meira notuð til að prófa og þróa götubíla Ferrari.

Framendi bílsins minnir á F8 Tributo. En að öðru leyti er hann í nokkuð góðum felulitum. Af myndbandinu að dæma virðist bíllinn liggja nokkuð vel í beygjum og komast í gegnum sumar háhraða beygjurnar á fullri inngjöf, sem verður talið benda til þess að um góðan bíl sé að ræða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×