Sport

Los Angeles liðin verða bæði í „Hard Knocks“ í ár og fyrsti þátturinn er í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það syttust í það að Aaron Donald og félagar í Los Angeles Rams hlaupi út á völl í fyrsta leik en áður verða þeir til umfjöllunar í „Hard Knocks“ þáttunum.
Það syttust í það að Aaron Donald og félagar í Los Angeles Rams hlaupi út á völl í fyrsta leik en áður verða þeir til umfjöllunar í „Hard Knocks“ þáttunum. Getty/Jayne Kamin-Oncea

Það styttist í NFL tímabilið þrátt fyrir mjög óvenjulega tíma í Bandaríkjunum sem og annars staðar í heiminum. Árleg áminning um það er það þegar „Hard Knocks“ þættirnir vinsælu mæta á svæðið. Fyrsti þátturinn í ár verður sýndur á Stöð 2 Sport 2 í kvöld.

Hard Knocks þættirnir fjalla að þessu sinni um bæði Los Angeles liðin en þetta er í fyrsta sinn sem tvö lið verða til umfjöllunar í einu. Í þessum fróðlegu og skemmtilegu þáttum fá áhorfendur að vera fluga á vegg á undirbúningstímabilum NFL-liða og sjá hvað gerist á bak við tjöldin.

Þetta er fimmtánda árið sem NFL deildin velur eitt (og nú tvö) félög til að fylgja eftir á undirbúningstímabilinu en að þessu sinni verða teknir upp meira en 2300 klukkutímar af efni sem síðan verður matreitt í þáttunum.

Fyrsti þátturinn af „Hard Knocks 2020“ verður sýndur á Stöð 2 Sport 2 í kvöld og verður hann strax á eftir Meistaradeildarleik Barcelona og Bayern München eða klukkan 21.30.

Undirbúningsleikirnir í NFL ættu vera farnir í gang og liðin búin að æfa í nokkrar vikur en kórónuveirufaraldurinn hefur haft mikil áhrif þar eins og annars staðar. Undirbúningstímabilið er því mjög óhefðbundið sem gerir jafnframt þessa þætti í ár mjög forvitnilega.

Umfjöllunarefni „Hard Knocks“ verður því annað en vanalega því æfingarnar eru talsvert öðruvísi og liðin eru ekki að spila æfingaleiki eða æfa með öðrum félögum.

Los Angeles liðin eru Los Angeles Rams og Los Angeles Chargers en þau eru að taka í notkun nýjan stórkostlegan leikvang á þessu tímabili.

Los Angeles Rams spilaði á Los Angeles Memorial Coliseum leikvanginum í fyrra en Los Angeles Chargers spilaði á Dignity Health Sports Park sem var afar dapur á NFL-mælikvarða.

Nú er búið að byggja hinn stórbrotna SoFi Stadium í Inglewood en hann tekur yfir sjötíu þúsund áhorfendur og mun á næstu árum hýsa Super Bowl 2022, HM í fótbolta 2026 og Ólympíuleikana 2028.

„Hard Knocks“ þættirnir verða sýndir á föstudagskvöldum næstu vikur en þeir verða fimm talsins. Þættirnir eru frumsýndir á HBO í Bandaríkjunum í sömu viku.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×