Innlent

Lögreglumönnum hafi ekki fækkað en fjöldi ómenntaðra aukist

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar

Í umfjöllun Kompáss í vikunni kom fram að lögreglumönnum hefur fækkað á meðan málum, íbúum og ferðamönnum fjölgar.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, segir að ekki hafi orðið fækkun hjá þeim sem sinna löggæslustörfum.

„Hann hefur staðið í stað fjöldi lögreglumanna en við höfum líka verið að nýta krafta ómenntaðra lögreglumanna. Þannig að það er ekki hægt að segja að þeim hafi fækkað sem eru að sinna löggæslustörfum.“

Í Kompás var sérstaklega fjallað um mikla fækkun menntaðra lögreglumanna. Hins vegar er það rétt hjá ráðherra að ef fjöldi ómenntaðra lögreglumanna er tekinn með þá virðist fjöldinn standa í stað. Hlutfall ómenntaðra lögreglumanna og lögreglunema í afleysingum hefur hækkað mikið síðustu ár og var á síðasta ári tæp 16% af lögreglumönnum.

Eins og sést hefur hlutfall ómenntaðra lögreglumanna af þeim sem starfa í lögreglunni aukist gífurlega síðustu ár.grafík/hafsteinn

Fram kom í Kompás að harkan og álagið í starfi hafi aukist og lögregla búi ekki yfir nægilegum styrk. Fagmennska og þjálfun sé auðvitað lykilatriði. Þá sagði formaður Landssambands lögreglumanna átta ráðherra málaflokksins hafa verið upplýsta um stöðuna en talað fyrir daufum eyrum.

„Ég hef ekki miklar áhyggjur af stöðunni en það þýðir ekki að við getum ekki gert betur. Ég held það séu mikil tækifæri til að efla lögregluna með ýmis konar hætti. Við höfum sett fjármuni í lögregluna sem er mörgum milljörðum meiri en bara fyrir nokkrum árum síðan,“ segir Áslaug Arna.

Á morgun kemur nýtt lögregluráð saman og segir ráðherra að fjármál lögreglunnar muni meðal annars vera þar til umræðu.

„Það er verið að skoða hér hvernig farið er með fjármunina og hvort við getum breytt einhverju í skipulaginu til að gera betur.“


Tengdar fréttir

Eftirför sem endaði með ósköpum

Kompás birtir sláandi myndband þar sem ölvuðum ökumanni var veitt eftirför. Sá hafði stofnað lífi fjölda annarra í hættu með hátterni sínu og óljóst hvernig hefði farið hefði lögregla ekki skorist í leikinn. Lögreglumenn eru sammála um að harka og ofbeldið í útköllum sé meira en áður.

Kompás: „Glapræði“ hvernig ástandið er í lögreglunni

"Við höfum bent á þessa undirmönnun sem er búin að vera viðvarandi í lögreglunni í fjölda mörg ár. Ekki færri en átta ráðherrar dómsmála hafa komið að þessu og fengið nákvæmlega sömu upplýsingar, en það stendur allt á sama stað og það gerist ekki neitt,“ segir formaður Landssamband lögreglumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×