Heimsmarkmiðin

Börn myrt í tugatali í árásum á skóla og heilsugæslustöðvar

Heimsljós
Barnaheill - Save the Children

Árásir á skóla og heilbrigðisstofnanir hafa aukist frá því í vor í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Gerðar voru meðal annars árásir á tvær heilsugæslustöðvar sem reknar eru af Barnaheillum – Save the Children. Samkvæmt frétt á vef íslensku samtakanna hafa 83 börn verið myrt af árásarhópum frá því í apríl. Þá hefur kynferðisofbeldi gegn börnum einnig aukist mikið á svæðinu.

Í fréttinni segir að átökin í landinu hafi staðið yfir í fjölda ára en hafi í maí náð hámarki í Ituri héraði, í austurhluta landsins. „Meira en 300 þúsund manns, börn í meirihluta, hafa flúið átökin í Ituri á þessu ári, sem er eitt fátækasta og óöruggasta svæði landsins. Fólksflutningar þessir hafa sett mikið álag á starf Barnaheilla á svæðinu en erfitt hefur reynst að koma aðstoð og birgðum til flóttafólks,“ segir í fréttinni.

„Vegna átakanna getum við ekki fylgst almennilega með veikum og vannærðum börnum. Börn eru því að deyja úr hungri,” segir Dr. Macky Manseka, verkefnastjóri mannúðaraðstoðar Save the Children í Kongó.

Meirihluti flóttafólks hefur að sögn Barnaheilla – Save the Children ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni eða hreinlætisvörum, en mesta útbreiðsla farsótta er í Ituri héraði. Heilbrigðisþjónusta í Ituri héraði er mjög takmörkuð og hafa um 22 heilbrigðisstofnanir verið eyðilagðar í átökunum og þar með hafa stórar birgðir af bóluefni skemmst. Að auki hafa um 160 skólar verið sprengdir upp og eyðilagðir.

Skortur á aðgengi að húsnæði, næringu, heilbrigðisþjónustu og menntun, gerir börn berskjölduð fyrir ofbeldi og misnotkun. ,,Aðstæður barna eru að versna með hverjum deginum. Við verðum að tryggja að þessi börn geti snúið aftur í skólann og að fjölskyldur þeirra geti fengið heilbrigðisþjónustu," segir Malik Allaouna, framkvæmdastjóri Barnaheilla - Save the Children í Kongó.

Átökin í Kongó hafa oft verið kölluð „gleymda stríðið“ vegna þess hversu takmarkaða fjölmiðlaathygli átökin hafa fengið en í landinu eru rúmlega fimm milljónir manna á flótta innan landamæranna og 15,6 milljónir manna búa við sult . Barnaheill hafa starfað í landinu frá árinu 1994 og hafa aðstoðað hundruð þúsunda barna.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×