Innlent

„Íslensk útgerðafyrirtæki eru reiðubúin til að greiða meira fyrir auðlindina í Namibíu en hér“

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Aðsend

Samherji greiddi hærri veiðigjöld í Namíbíu en hér á landi árið 2018 eftir að stjórnvöld þar hækkuðu veiðigjöldin úr einu prósenti í tíu prósent. Formaður Viðreisnar segir þetta sýna að útgerðir séu viljugar til að greiða veiðigjöld þrátt fyrir miklar hækkanir. Auðlindarákvæði í stjórnarskrá sé nauðsyn.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar ásamt fleiri þingmönnum óskaði eftir að skýrsla væri gerð um samanburð á greiðslum Samherja fyrir veiðirétt í Namibíu og á Íslandi á grundvelli upplýsinga frá Fiskistofu og þeim skjölum sem RÚV fjallaði um í fréttaskýringaþættinum Kveik í nóvember í fyrra. Miklar deilur urðu á Alþingi vegna beiðninnar.

„Þessi skýrslubeiðni er auðvitað ekkert annað heldur en ákveðið lýðskrum sem að fer fram í kjölfarið á alvarlegu máli sem upplýst hefur verið um og er til skoðunar og rannsóknar. Hér er þyrlað upp pólitísku moldviðri útaf ágreiningsefni sem hefur verið um veiðigjöld á Íslandi og því haldið fram að útgerðin skammti sér veiðigjöld eftir því að hún telur að sé hæfilegt hverju sinni,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins á alþingi þann 6. febrúar á þessu ári.

Það fór þó svo að skýrslubeiðnin var samþykkt á alþingi og var Hagfræðistofnun Háskóla Íslands falið að gera hana. Hún birtist á vef alþingis í gær. Þar kemur fram að á árunum 2012-2017 eru veiðigjöld Samherja í Namibíu um 1 % af verðmæti afla en veiðigjöld sem fyrirtækið greiðir hér á sama tíma frá 5-12%. 

Árið 2018 var hlutfallið fest í lög í Namibíu og varð þá hærra en hér á landi eða 10%.

„Þetta sýnir að stjórnvöld í Namibíu hafa pólitískan kjark til að hækka veiðigjöld verulega þannig að þau verða mun hærri en hér á landi. Íslensk útgerðafyrirtæki eru reiðubúin til að greiða meira fyrir auðlindina í Namibíu en hér. En hér á landi eru svo stjórnvöld sem hafa markvisst lækkað veiðigjöld og það er pólitísk ákvörðun að lækka þau alveg síðan 2013, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar.   

Í skýrslunni kemur fram að veiðigjöld á þorski karfa síld og loðnu hér á landi eru mun hærri árið 2012 en árið 2018. Þorgerður vill sjá breytingar.

„Við viljum ekki kollvarpa kerfinu heldur uppfæra það þannig að þjóðin fái sinn sanngjarna eðlilega hlut í auðlindinni,“ segir Þorgerður. 

Hún segir mikilvægt að fá auðlindaákvæði í stjórnarskrá

„Það þarf auðlindarákvæði sem bit er í en ekki eitthvað málamiðlunarákvæði stjórnarflokkanna. Þannig að réttur þjóðarinnar sé ótvíræður og að útgerðin hafi tímabundinn aðgang að auðlindinni,“ segir Þorgerður. 

Í fréttum Bylgjunnar í dag kom fram að Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fékk ekki umbeðna árskýrslur frá dótturfélagi Samherja í Namibíu til að hægt væri að bera saman hagnað þar og hér á landi. Fréttastofa óskaði eftir svörum frá Samherja af hverju gögnin hefðu ekki verið veitt og hafði ekki fengið svör þegar fréttatími Stöðvar 2 fór í loftið.  


Tengdar fréttir

Samherji sagðist ekki hafa tíma til að taka saman ársreikninga frá Namibíu

Samherji greiddi lægra hlutfall veiðigjalda af meðalverði afla í Namibíu frá 2012 til 2017 en hér á landi. 2018 var hlutfallið orðið hærra í Namibíu en hér. Forstöðumaður Hagfræðisstofnunar segir að Samherji hafi ekki afhent umbeðna árskýrslu dótturfyrirtækis síns í Namibíu og því hafi ekki verið hægt að bera saman hagnað í löndunum tveimur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×