Heimsmarkmiðin

Sparnaðaraðgerðir í mæðravernd ávísun á mæðradauða í stórum stíl

Heimsljós
UN Women

Sameinuðu þjóðirnar áætla að sparnaðaraðgerðir í mæðravernd sem fátækari ríki hafa gripið til í þeim tilgangi að stemma stigu við kostnaði vegna COVID-19 komi til með að kosta allt að 113 þúsund konur lífið. Þetta kemur á vef UN Women sem vekur athygli á því að reynsla af áhrifum faraldra sýni að þeir leggjast af meiri þunga á konur og jaðarsetta hópa en karla.

Nýlegar úttektir og rannsóknir sýna, segir UN Women, að á tímum útgöngubanns hafi heimilisofbeldi aukist gríðarlega, barnshafandi konum hafi verið vísað frá fæðingardeildum sjúkrahúsa vegna skorts á rými eða starfsfólki, konur sem starfi við heimilishjálp hafi orðið útundan í efnahagslegum aðgerðaráætlunum ríkisstjórna, og með langvarandi lokunum skóla hafi vinnuframlag kvenna tvöfaldast í faraldrinum. Þá séu konur líklegri til að missa atvinnuna en karlmenn.

„Skæðir veirufaraldrar á borð við COVID-19, zika og ebólu ógna ekki aðeins heilsu fólks, heldur hafa þeir neikvæð áhrif á stöðu og réttindi kvenna og jaðarsettra hópa. Strax í vor vöktu ýmsar stofnanir Sameinuðu þjóðanna athygli á skuggafaraldri sem geisaði samhliða COVID-19. Umræddur skuggafaraldur var heimilisofbeldi sem jókst til muna meðan á samkomutakmörkunum stóð en hafði þá lítið verið rætt um,“ segir í frétt UN Women.

Þar segir enn fremur að þegar ebólufaraldur geisaði í Sierra Leone árið 2014 hafi strax mátt greina neikvæð áhrif faraldursins á líf kvenna. „Eftir því sem smitum fjölgaði í landinu, varð tíðni mæðra- og ungbarnadauða hærri. Sjúkrahús lokuðu fæðingardeildum sínum í þeim tilgangi að sinna smituðum og því neyddust margar konur til þess að fæða án aðstoðar fagfólks. Í lok faraldursins höfðu 3.589 látist af ebólu, en um 3.500-4.900 fleiri konur og börn létust við barnsburð en á árunum fyrir 2014.“

„Það er gríðarlega mikilvægt að raddir allra fái að heyrast þegar tekist er á við veirufaraldur. Viðbragðsáætlanir sem taka einungis mið af þörfum afmarkaðra hópa auka aðeins á mismunun og ójöfnuð í samfélögum,“ segir í frétt UN Women.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×