Sport

Liverpool mætir nýliðum Leeds í fyrsta leik í titilvörninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Liverpool vann ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn og enska meistaratitilinn í fyrsta sinn í 30 ár á síðustu leiktíð. Leiðtogarnir Jordan Henderson og Virgil van Dijk fagna hér titlinum með félögum sínum í Liverpool liðinu.
Liverpool vann ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn og enska meistaratitilinn í fyrsta sinn í 30 ár á síðustu leiktíð. Leiðtogarnir Jordan Henderson og Virgil van Dijk fagna hér titlinum með félögum sínum í Liverpool liðinu. EPA-EFE/Phil Noble

Enska úrvalsdeildin gaf í morgun út leikjaplanið fyrir komandi tímabil í deildinni sem hefst nú einum mánuði seinna út af kórónuveirunni.

Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar 2020-21 hefst laugardaginn 12. september en forráðamenn deildarinnar þurftu að koma þessum 380 leikjum fyrir á styttri tíma en áður vegna þess að tímabilið er að hefjast miklu seinna en vanalega.

Englandsmeistarar Liverpool mæta nýliðum Leeds í fyrsta leik sínum í titilvörninni. Liverpool var að vinna ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn í þrjátíu ár en Leeds er komið upp í ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn síðan árið 2004.

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton mæta Tottenham á útivelli í fyrsta leik en Gylfi spilaði auðvitað með Tottenham í tvær leiktíðir á sínum tíma.

Lið Manchester City og Manchester United fóru lengst af ensku liðunum í Evrópukeppnunum í ágúst og á því lengra frí en hin liðin. Ástæðan er að félögin samþykktu það að hvert lið yrði að minnsta kosti að fá þrjátíu daga frí á milli síðasta leiksins á 2019-20 tímabilinu og þess fyrsta á 2020-21 tímabilinu. Því gátu Manchester liðin ekki spilað fyrstu leiki sína þessa fyrstu helgi.

Leikir liðanna sem áttu að fara fram þessa helgi voru annars vegar leikur Burnley og Manchester United en hins vegar leikur Manchester City og Aston Villa.

Chelsea og Wolves duttu út í átta liða úrslitunum en vegna þess munu leikir þeirra ekki fara fram fyrr en á mánudeginum 14. september. Chelsea heimsækir þá Brighton og Úlfarnir mæta til Sheffield United.

Nýliðar deildarinnar eru lið Leeds, West Bromwich Albion og Fulham. Enska úrvalsdeildin hefur séð mikið af West Brom og Fulham á síðustu árum en þetta verður í fyrsta sinn í sextán ár sem Leeds spilar í deild þeirra bestu.

Leeds mætir eins og áður sagði Liverpool á Anfield en West Bromwich Albion tekur á móti Leicester City og Fulham fær Arsenal í heimsókn.

Hér má sjá alla leiki í öllum ferðum.

Fyrsta umferðin í ensku úrvalsdeildinni 2020-21 lítur þannig út:

  • Laugardagur 12. september:
  • Crystal Palace - Southampton
  • Fulham - Arsenal
  • Liverpool - Leeds United
  • Tottenham Hotspur - Everton
  • West Bromwich Albion - Leicester City
  • West Ham United - Newcastle United
  • Mánudagur 12. september:
  • Brighton - Chelsea
  • Sheffield United -v Wolves
  • Frestaðir leikir
  • Burnley - Manchester United
  • Manchester City - Aston Villa



Fleiri fréttir

Sjá meira


×