Innlent

Jökli bjargað úr höfninni

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Jökull SK-16 fór á bólakaf í Hafnafjarðarhöfn. 
Jökull SK-16 fór á bólakaf í Hafnafjarðarhöfn.  helgi hinriksson

Trébáturinn Jökull SK-16 er kominn á flot. Hann sökk við Óseyrarbryggu í Hafnarfirði fyrr í vikunni. 

Vegfarandi hafði samband við slökkviliðið þar sem hann taldi bátinn halla heldur mikið í höfninni. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var báturinn svo gott sem alveg sokkinn þegar viðbragðsaðila bar að garði. Enginn var í bátnum þegar hann sökk.

Jökull SK-16 er 80 tonna trébátur smíðaður í Þýskalandi 1959. Vel gekk að ná bátnum úr höfninni í dag að sögn Helga Hinrikssonar framkvæmdastjóra Köfunarþjónustunnar, sem sá um framkvæmdir á verkstað í samvinnu við eiganda bátsins.

Hann segir að aðgerðaáætlunin sem lagt var upp með hafi gengið 100 prósent.  Hún var í grófum dráttum svona: 

  • Komið var fyrir mengunarvarnargirðingum í kringum bátinn til að lágmarka mengun.
  • Lestarlúgan var lengd um 120 cm. Svo að hún næði upp fyrir sjávarmál.
  • Komið var fyrir dælum í lest bátsins.
  • Komið var fyrir stroffum undir bátinn að framan og að aftan.
  • Krani notaður til að styðja við bátinn og rétta hann af.
  • Dælur gangsettar og sjór tæmdur úr lest og vélarrými sem verður til þess að báturinn lyftist upp og flýtur.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá aðgerðunum í dag.

Helgi Hinriksson
Helgi Hinriksson

Helgi Hinriksson


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×