Bíó og sjónvarp

Það besta af DC FanDome: Wonder Woman, Batman og Snyder

Samúel Karl Ólason skrifar
Batman, Wonder Woman, Peacemaker og Uxas/Darkseid.
Batman, Wonder Woman, Peacemaker og Uxas/Darkseid.

WarnerMedia og DC Entertainment sýndu fjölda nýrra stikla og annað efni á DC FanDome. Þar er um að ræða nokkurs konar net-ráðstefnu/hátíð þar sem fyrirtækin sýndu það sem er í vændum frá söguheimi DC. Fyrri hluti FanDome, sem nefnist Hall of Heroes, var sýndur í gær.

Þar voru meðal annars sýndar stiklur úr nýjum kvikmyndum um Wonder Woman og Batman og ýmislegt annað. Ýmis verkefni fengu engar stiklur, eins og ný Flash mynd með Esra Miller og Ben Affleck og ýmislegt fleira.

Hægt er að fylgjast með kynningunum á Twittersíðu hátíðarinnar.

Hér að neðan verður þó stiklað á stóru yfir helstu stiklurnar sem búið er að sýna.

Wonder Woman 1984

Wonder Woman snýr aftur í nýrri kvikmynd og að þessu sinni gerist hún árið 1984.

The Batman

Leðurblökumaðurinn snýr aftur en að þessu sinni í nýrri mynd sem tengist ekki þeim kvikmyndasöguheimi sem hefur verið skapaður. Robert Pattinson er hér í hlutverki Batman og verður þessi mynd í dekkri kanntinum, miðað við stikluna.

Snyder-útgáfan

Allt frá því að Justice League kom út, við dræmar móttökur, hafa aðdáendur ofurhetjanna kallað eftir því að leikstjórinn Zack Snyder, sem hóf framleiðslu myndarinnar en þurfti frá að hverfa, fengi tækifæri til að klára verk sitt og gefa út eigin útgáfu.

Það mun gerast. HBO Max mun sýna myndina sem verður skipt niður í fjóra klukkustundarlanga hluta.

The Suicide Squad

Leikstjórinn James Gunn er að gera nýja Suicide Squad kvikmynd með leikurum eins og Idris Elba og John Cena. Um er að ræða nokkurs konar reboot og gerist þess mynd nokkrum áratugum fyrir okkar tíma.

Black Adam

Dwayne Johnson hefur tekið að sér hlutverk Black Adam í samnefndri kvikmynd. Sú mynd fékk ekki almennilega stiklu heldur stutta teiknimynd sem sýnir grunninn að sögu galdramannsins.

Tveir tölvuleikir

Tveir tölvuleikir voru þar að auki kynntir í gær. Suicide Squad: Kill the Justice League og Gotham Knights.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×