Sport

Íþróttafélög krefjast breytinga á gölluðu kerfi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Aaron Rodgers (t.v.) er búinn að fá nóg af lögregluofbeldinu og kerfisbundna kynþáttaníðinu í Bandaríkjunum.
Aaron Rodgers (t.v.) er búinn að fá nóg af lögregluofbeldinu og kerfisbundna kynþáttaníðinu í Bandaríkjunum. Stacy Revere/Getty Images

Stærstu íþróttalið Wisconsin-ríkis í Bandararíkjunum hafa kallað eftir því að hlutirnir þar í landi breytist eftir að lögreglan skaut mann er hann reyndi að fara inn í bifreið sína. Þar á meðal eru NFL-liðið Green Bay Packers og Milwaukee Bucks sem er nú í miðri úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta.

Jacob Blake var skotinn sjö sinnum í bakið er hann reyndi að fara inn í bifreið sína. Hörð mótmæli hafa átt sér stað í Kenosha vegna morðsins en  það er úthverfi í Milwaukee.

Aaron Rodgers, leikstjórnandi Green Bay Packers, og eitt þekktasta nafnl NFL-deildarinanr hefur einfaldlega fengið nóg. Hann segir að lögin í Bandaríkjunum séu fordómafull gagnvart fólki sem tilheyrir minnihlutahópum.

„Það er galli í heildarkerfinu og þangað til vandamálið verður lagað verður þetta alltof algeng sjón í landinu. Fyrir öll okkar sem erum ekki lögreglumenn þá veltum við fyrir okkur hvort það hafi þurft að nota banvænt afl [skotvopn]. Lögin í þessu landi eru úrelt og fordómafull gagnvart minnihlutahópum. Ég held að fólk í valdastöðum þurfi að horfa vel og vandlega á sum þessara kerfa sem eru við lýði,“ sagði Rodgers.

„Þó við skiljum að það verði gerð rannsókn á þessu skelfilega atviki, þá erum við mjög áhyggjufull yfir því sem er einfaldlega dæmi um hverju við stöndum frammi fyrir hér í landi: lögregluofbeldi, kerfisbundinn rasismi og óréttlæti gagnvart svörtu fólki,“ segir í yfirlýsingu frá Green Bay.

Mike Budenholzer, þjálfari NBA-liðsins Milwaukee Bucks, ræddi skotárásina á blaðamannafundi fyrir fjórða leik Bucks og Orlando Magic í úrslitakeppni NBA-deildarinnar.

„Aftur er ungur svartur maður skotinn af lögreglunni. Við þurfum breytingar, við þurfum að vera betri.“

„Við stöndum með öllu svörtu fólki og viljum að kerfinu verði breytt vegna George Floyd, Breonna Taylor, Sylville Smth, Ernest Lacy, Dontre Hamilton, Tony Robinson, Joel Acevedo og allra hinna óteljandi fórnarlambanna,“ sagði í yfirlýsingu Bucks um málið.

Í kjölfar morðsins á George Floyd hafa margir íþróttamenn sem og íþróttafélög í Bandaríkjunum látið í sér heyra og gert þær kröfur að ríkisstjórnin þar í landi breyti því sem virðist meingallað kerfi. 

Það hefur ekki enn gerst en hver veit nema hlutirnir fari allavega að mjakast í rétta átt undir lok árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×