Skoðun

Rétt húsnæði á réttum stað á réttum tíma

Guðmundur Kristján Jónsson skrifar

Skömmu áður en að kórónuveiran skall á landsmenn af fullum þunga voru blikur á lofti á fasteignamarkaði samkvæmt íbúðatalningu Samtaka Iðnaðarins (SI). Talningin, sem fór síðast fram í mars síðastliðnum, bendir til verulegs samdráttar á íbúðum í byggingu, einkum og sér í lagi á fyrstu byggingarstigum eða um 42%. Leita þarf aftur til áranna 2011-2012 til að finna viðlíka samdrátt í íbúðabyggingum á höfuðborgarsvæðinu. Í nýlegum mánaðarskýrslum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) kemur jafnframt fram að meðalsölutími nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu er að lengjast og að á meðal nýrra íbúða hefur íbúðum sem seljast á yfirverði fækkað hlutfallslega og íbúðum á undirverði fjölgað.

Af þessu má í einföldu máli draga nokkrar ályktanir. Það er yfirvofandi skortur á fasteignamarkaði sem á árunum 2023-2026 gæti líkst skortinum sem var uppi á árunum 2016-2017. Skorturinn gæti leitt til verðhækkana sem koma verst við viðkvæmustu hópa samfélagsins á tímum mikilla efnahagsþrenginga. Þá er einnig ljóst að nýjar íbúðir eru ekki að svara kalli markaðarins ef marka má gögn um sölutíma og söluverð. Með öðrum orðum: Það er ekki verið að byggja rétta tegund af húsnæði, á réttum stað á réttum tíma.

Samstíga um lausnir

Á síðustu árum hafa margir spurt sig hvað sé til ráða og ljóst er að vandinn er margslunginn og lausnirnar þar af leiðandi líka. Það góða við stöðuna er að ekki virðist vera mikill ágreiningur um hvaða skref þarf að stíga til að ráðast að rót vandans. Ein af lykillausnunum í þeim efnum er aukin yfirsýn sem byggir á rauntímaupplýsingum. Mikilvægt skref í þá átt var stigið með sameiningu hluta Íbúðarlánasjóðs og Mannvirkjastofnunar í HMS en á meðal verkefna HMS er rafræn byggingargátt sem miklar vonir eru bundnar við. Þá er einnig rétt að nefna Byggingavettvanginn en hann er samráðsvettvangur hagaðila í byggingariðnaði hvers hlutverk er er að „tryggja og efla samtal lykilaðila, stuðla að meiri samhæfingu greinarinnar og betra samstarfi auk þess að auka nýsköpun, rannsóknir og þróun” líkt og fram kemur á heimasíðu verkefnisins.

Spennandi breytingar

Að Byggingavettvanginum standa SI, HMS, Framkvæmdasýsla ríkisins, Nýsköpunarmiðstöð, Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) og Skipulagsstofnun en forystufólk þessara stofnana og samtaka eru á meðal þeirra sem hafa verið leiðandi í umræðunni um nauðsynlegar úrbætur á sviði skipulags- og byggingarmála. Ýmsar tillögur að lausnum hafa litið dagsins ljós að undanförnu og felast margar af þeim í stafrænni þróun og ýmiskonar tæknilausnum á borð við rafrænu byggingargáttina. Skipurit hafa tekið breytingum af þessum sökum og hefur SÍS til að mynda ráðið í starf breytingastjóra stafrænnar þjónustu og í nýlegu skipuriti Skipulagstofnunar varð til nýtt starf forstöðumanns nýsköpunar og þróunar. Nú í ágúst birtist síðan skýrsla starfshóps til ráðherra um tillögur átakshóps í húsnæðismálum varðandi skipulagsmál þar sem m.a. er lögð rík áhersla á rafræna stjórnsýslu og stafrænar lausnir. Allt er þetta mjög til bóta og spennandi breytingar í farvatninu.

Betur má ef duga skal

Margir myndu halda að rauntímatölur- og gögn um skipulags- og byggingariðnaðinn væru á reiðum höndum og öllum aðgengilegar á upplýsingaöld. Svo er hinsvegar ekki og afleiðingarnar hafa löngum leitt til óþarfa sveiflna sem hafa áhrif á lífsgæði almennings og alla þá 14.000 einstaklinga sem starfa við mannvirkjagerð á Íslandi. Hægt en örugglega eru hinsvegar að verða til innviðir í kerfinu í formi nýrra starfa og samstarfsvettvanga sem miða að því að skapa og nýta stafrænar lausnir sem eru sannarlega innan seilingar (e. low hanging fruits) og til þess fallnar að veita áður óþekkta og nauðsynlega yfirsýn yfir þetta mikilvæga svið. Betur má hinsvegar ef duga skal í ljósi ofangreindra upplýsinga og ekki seinna vænna að byrja að smyrja stafrænu hjólin í samstarfi við einkaaðila til að húsnæðisskortur bætist ekki við ófyrirséðar afleiðingar kórónuveirufaraldursins á komandi árum. Nýtum okkur tæknina til að byggja rétta tegund af húsnæði, á réttum stöðum á réttum tíma. Til þess er hún.

Höfundur er skipulagsfræðingur og stofnandi Planitor



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×