Viðskipti innlent

Þetta eru molarnir fjórir sem Nói Siríus fórnar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Nýju molarnir fjórir sem ryðja burtu fjórum öðrum.
Nýju molarnir fjórir sem ryðja burtu fjórum öðrum. nói siríus.

Fjórir þekktir molar munu víkja úr Nóa konfektinu fyrir fjórum nýjum molum. Áfram verða því 16 mismunandi gerðir af molum í kassanum sem að öðru leyti hefur tekið fáum breytingum í áranna rás.

Það kann að skýra þá miklu athygli sem fregnir af breytingunum vöktu í gær. Ef frá er talinn „Íslandsmolinn“ með saltkaramellu-fyllingu hafa Íslendingar geta gengið að sömu molunum í konfektakassanum í áratugi.

Nú verður hins vegar breyting á, fjórðungi molanna verður skipt út. Að sögn Silju Mistar Sigurkarlsdóttur, markaðsstjóra hjá Nóa Siríus, liggur mikil vinna að baki valinu. Fyrirtækið hafi gert fjölda skoðanakannana og þannig komist að því hvaða fjórir molar voru í minnstu uppáhaldi hjá Íslendingum.

Molarnir sem munu víkja, sem landsmönnum þykja verstir, eru marsípanmolinn með appelsínubragði, kókosmolinn, jarðaberjamolinn og kirsuberjamolinn.

Í þeirra stað koma fjórir aðrir. Einn þeirra er með kókos- og karamellubragði, sem bragðast eins og sjónvarpskaka að sögn Silju. Hann hafi orðið til fyrir tilviljun og er með laufabrauðsmynstri.

Þá skartar einn molinn hrafni en sá er með lakkrísfyllingu. Silja segir þetta fyrsta konfektmolann með lakkrísbragði sem ratar í kassann, það hafi verið tímabært í ljósi dálætis Íslendinga á lakkrís.

Einnig bætist við kókosmarsípanmoli. Bítismenn sem fengu að bragða molana í morgun voru sammála um að hann væri bestur þessara fjögurra.

Fjórði nýi molinn er rjómatrufflumoli. Sá byggir á gömlu grunni en áratugagömul uppskrift að molanum fannst fyrir slysni. Silja segir smá „Baileys-bragð“ að honum.

Síðasta nýja molanum var pakkað inn í gær og segir Silja að vonir standi til að hægt verði að kaupa breyttu konfektkassana öðru hvorum megin við helgina. Ekki sé loku fyrir það skotið molarnir sem hverfa úr kössunum verði aftur fáanlegir síðar.

Umfjöllun um nýju molanna má heyra í spilaranum hér að ofan.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×