Atvinnulíf

Fjár­festa­dagur Startu­p SuperNova í beinni út­sendingu á Vísi

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Lyuba Kharitonova, einn þátttakenda Startup SuperNova 2020.
Lyuba Kharitonova, einn þátttakenda Startup SuperNova 2020. Aðsend mynd

Á morgun föstudag verður bein útsending á Vísi þar sem tíu sprotafyrirtæki sem taka þátt í fjárfestadegi viðskiptahraðals Startup SuperNova kynna viðskiptahugmyndir sínar. 

Þetta er í fyrsta sinn sem fjárfestiviðburður sem þessi er sýndur beint á netinu en útsendingin hefst klukkan 13. Fjárfestadagurinn hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti viðburður ársins í sprotaumhverfinu en hann hefur fram til þessa eingöngu verið opinn boðsgestum.

Þórdís Kolbrún Gylfadóttir, ráðherra nýsköpunar opnar viðburðinn. Sigurlína Ingvarsdóttir, einn fremsti leiðtogi í leikjaiðnaði á heimsvísu, heldur erindi en Sigurlína hefur m.a. stýrt framleiðslu á FIFA og Star WARS Battlefront. Fundarstjóri er Bergur Ebbi Benediktsson.

„Við viljum grípa tækifærið og gera nýsköpun hærra undir höfði. Okkar draumur er sá að viðburðurinn muni kveikja neista í hjörtum næstu kynslóðar frumkvöðla og hjá þeim fjölmörgu sérfræðingum sem misst hafa vinnuna í kjölfar kórónaveirufaraldursins og standa nú á tímamótum,“ er haft eftir Salóme Guðmundsdóttir framkvæmdastjóra Icelandic Startups í tilkynningu.

Sprotafyrirtækin tíu voru valin úr hópi 120 umsókna en við val þeirra var sérstaklega horft til viðskiptahugmynda sem ætluð eru á alþjóðamarkað. Fyrirtækin hljóta fjárstyrk að upphæð ein milljón króna auk þess að fá fullbúna vinnuaðstöðu í hugmyndahúsinu Grósku í Vísindagörðum, fræðslu, þjálfun og ráðgjöf frá reyndum frumkvöðlum, fjárfestum og öðrum sérfræðingum auk stuðnings við að koma viðskiptahugmynd sinni á framfæri og efla tengslanetið. Þannig hafa hátt í hundrað manns komið að verkefninu í sumar, margir hverjir árangursríkir frumkvöðlar.

Startup SuperNova er flaggskip Icelandic Startups sem hefur undanfarna tvo áratugi hjálpað frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum á borð við Meniga, Genki Instruments, Pay Analytics, Key Natura, Taktikal, Kaptio og Controlant með góðum árangri.

Markmið þeirra fyrirtækja sem kynna munu viðskiptatækifæri sín eru meðal annars að auka skilvirkni við gagnagreiningu, fækka spítalasýkingum og draga úr óskilvirkni á vinnustöðum. Nánari upplýsingar um fyrirtækin sem kynna munu starfsemi sína má finna á vefsíðu Startup SuperNova.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×