Innlent

Berbakt áskorun gengur á milli hestamanna

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Hestamenn reyna nú að toppa hvern annan í skemmtilegri áskorun, sem gengur út á það að beisla og leggja hnakk á hest eftir að hafa hoppað upp upp á hestinn og setið á honum berbakt á meðan gjörningurinn fer fram.

Hestamenn landsins keppast nú við að finna eitthvað sniðugt til að gera á tímum kórónuveirunnar og þegar búið er að slá landsmót hestamanna af, sem fara átti fram á Hellu í sumar. Mótið verður þess í stað haldið sumarið 2022. Áskorun gengur nú á milli hestamanna á samfélagsmiðlum þar sem þeir skora á hvorn annan að leysa ákveðna þraut en hún byggir á því að beisla og leggja hnakkinn og festa hann á hestinn sitjandi á honum berbakt. Það þarf mikla færni og liðleika til að ná þessu á sem skemmstum tíma.

Katrín sem segir að hestamenn finni sér ýmislegt skemmtilegt að gera á meðan kórónaveiran gengur yfir.Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Mæðgurnar á Skeiðvöllum í Rangárþingi ytra ákváðu að keppa um það hvort væri fljótari. Guðlaug Birta er 14 ára með hryssuna Ynju frá Reykjavík, 11 vetra, en aldur mömmu hennar verður ekki gefin upp. Hún er með stóðhestinn Þyt frá Neðra-Seli, 21 vetra.

„Já, það er ýmis vitleysan, sem kemur fram þegar það er svona ástand eins og er í þjóðfélaginu í dag, fólk að gera sér eitthvað til skemmtunar,“ segir Katrín.

Guðlaug Birta fagnaði sigri á mömmu sinni á hestinum Ynju. Hér er hún að festa gjörðina á hnakknum.Magnús Hllynur Hreiðarsson.
Þegar ljóst var að Guðlaug Birta sigraði mömmu sína tók hún glæsileg afstökk af Ynju og meðan mamma hennar gekk niðulút af velli.

Katrín datt af baki á meðan áskorunin fór fram en hún var fljót að fara á bak aftur og klára áskorunina við dóttur sína enda mikil keppnismanneskja.Magnús Hlynur Hreiðarsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×