Atvinnulíf

Vinna náið með Facebook og Sony og ætla að fjölga starfsfólki

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Frá vinstri: Gunn­ar Steinn Val­g­arðsson og Hrafn Þorri Þóris­son, stofn­end­ur Ald­in.
Frá vinstri: Gunn­ar Steinn Val­g­arðsson og Hrafn Þorri Þóris­son, stofn­end­ur Ald­in. Vísir/Vilhelm

„Vörur Aldin, þar með taldar þær sem við sköpuðum 2013, gera margt sem enginn hefur séð áður og vekur athygli. Meðstofnandi Oculus, sem er nú í eigu Facebook, fannst mikið til koma og hafði samband sem svo leiddi til formlegs samstarfs,“ segir Hrafn Þórisson framkvæmdastjóri Aldin aðspurður um það hvernig samstarf fyrirtækisins við tæknirisa eins og Facebook, Sony, Valve og fleiri kom til. Aldin var stofnað árið 2013 af þeim Hrafni Þórissyni og Gunnari Steini Valgarðssyni og hlaut nýverið styrk úr Tækniþróunarsjóði.

Fyrirtækið fagnar nú þeim áfanga að hafa selt yfir hundrað þúsund eintök af sýndarveruleiknum Waltz of the Wizard: Extended Edition en það er útgáfa af sýndarveruleik sem Aldin gaf út í fyrra. Í Waltz of the Wizard öðlast notendur töframátt og geta án þess að nota stýripinna framkvæmt alls skyns galdra með því að smella eigin fingrum, láta hluti hverfa, skjóta eldingum, lengja fingur, breyta hlutum í froska og fleira.

En hvernig var að stofna nýsköpunarfyrirtæki eftir bankahrun?

„Við komum okkur tveir af stað á eigin spýtur fyrstu tvö árin. Það var auðvitað áskorun að stofna fyrirtæki í fyrsta sinn, búa til fordæmislausar vörur og vinna á áhættusömum markaði,“ segir Hrafn og bætir við 

Við unnum mjög bókstaflega myrkranna á milli og gáfum út leikjafrumgerðir sem seldust nógu vel til að fjármagna skrifstofu og búnað. Þar eftir fengum við styrk frá Tækniþróunarsjóði og fyrstu fjárfestinguna.“

Árið 2016 fjárfesti félagið Investa í Aldin og við það settist Hilmar Gunnarsson í stjórn sem Hrafn segir að hafi verið afar dýrmætt fyrir félagið því með Hilmari kom reynsla, þekking og skilningur á þeim markaði sem Aldin er að sækja á. Þá bættist Crowberry Capital við sem hluthafi árið 2018 og situr Helga Valfells í stjórn félagsins fyrir þeirra hönd. „Hilmar hefur veitt okkur afar mikilvægan stuðning gegnum árin, og viðskiptareynsla Helgu kemur inn á mikilvægum tíma fyrir fyrirtæki á okkar stað“ segir Hrafn.

Að sögn Hrafns skipti það miklu máli fyrir Aldan að fá fjárfesta til liðs við félagið sem væru meðvitaðir um að þróun vörunnar gæti tekið tíma og að samkeppni á markaði væri mikil. 

Til að skilja betur í hvaða umhverfi sýndarveruleiki er segir Hrafn ágætt að líkja þróun sýndarveruleika við það þegar Apple kynnti fyrstu Macintosh tölvurnar með innbyggðri mús. ,,Slíkar byltingarkenndar tæknir þurfa tíma til skjóta rótum áður en þær vaxa, nýlegt dæmi hvernig takkafarsímar sköpuðu mikilvægar undirstöður fyrst sem Apple gat svo byggt á til að gera snjallsíma að almenningsvöru,“ segir Hrafn.

Hrafn segir aðkomu fjárfesta hafa skipt miklu máli því með þeim hafi reynslumikið fólk komið inn í stjórn.Vísir/Vilhelm

Starfa með tæknirisum

Samstarf Aldin við tæknirisa eins og Facebook, Valve og Sony felst í því að búa til efni fyrir sýndarveruleikabúnað. Tæknin sem Aldin hefur þróað hefur hlotið mikið lof fyrir nýsköpun allt frá upphafi. 

Til dæmis fékk fyrsta útgáfa Waltz of the Wizard hæstu einkunn í leikjaversluninni Steam og hélt því sæti allt þar til sýndarveruleikurinn Half-Life: Alyx kom út fyrr á þessu ári. 

Að sögn Hrafns var fyrsta útgáfan af Waltz of the Wizard þó ókeypis. „Við höfum gert vissar skammtímafórnir í þágu þess að standa sterkar seinna meir og grípa mun stærri tækifæri en þau sem sést hafa fram að þessu“ segir Hrafn. Þá segir hann það hálfgert einkenni fyrir Aldin í dag að ryðja nýjar brautir í efnisgerð fyrir sýndarveruleikaleiki sem höfðar mikið til almennings en frá fyrsta degi hefur verið lögð áhersla á alla nýsköpun.

Styrkurinn sem Aldin hlaut nýverið frá Tækniþróunarsjóði nam fimmtíu milljónum króna og tilheyrði sjóðnum Vexti. Þá hefur Aldin sótt um styrk í sjóðinn Sprett þar sem möguleiki er á allt að tuttugu milljónum króna í styrk til viðbótar. 

Á þessu ári og því næsta sér Hrafn fyrir sér fjölgun starfsfólks enda ætlunin að stækka Waltz of the Wizard leikinn enn frekar.

„Við lögðum snemma þá stefnu að ráða fáa en hæfileikaríka starfsmenn og stækka í takt við markaðinn. Lengst af vorum við þrír, þar sem Páll Arinbjarnar varð snemma fyrsti starfsmaðurinn, og í dag erum við fimm í fullu starfi, auk stjórnar og ráðgjafa,“ segir Hrafn og bætir við 

Á þessu ári erum við að bæta við okkur nokkrum starfsmönnum og sjáum svo fram á að verða tvöfalt fleiri á næsta ári.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×