Fótbolti

Afar ólíklegt að Ísland fari í HM-umspil út frá Þjóðadeild | Lakari lið í betri stöðu

Sindri Sverrisson skrifar
Ísland er á leið í EM-umspil vegna stöðu sinnar í Þjóðadeildinni. Fyrir HM gilda aðrar reglur.
Ísland er á leið í EM-umspil vegna stöðu sinnar í Þjóðadeildinni. Fyrir HM gilda aðrar reglur. VÍSIR/DANÍEL

Ísland þyrfti að vinna sinn riðil í Þjóðadeildinni í fótbolta til að keppnin gagnaðist liðinu við að komast í umspil um sæti á HM í Katar 2022.

Fyrst var leikið í Þjóðadeildinni haustið 2018 og réði lokastaðan þar því hvaða lið leika í umspilinu um sæti á EM. Þannig komst Ísland í EM-umspilið vegna stöðu sinnar í A-deild Þjóðadeildarinnar, þrátt fyrir að lenda þar í neðsta sæti og tapa öllum leikjum sínum, gegn Sviss og Belgíu. Önnur lið í A-deildinni komust nefnilega á EM í gegnum hina hefðbundnu undankeppni EM.

Það er því stöðu Íslands í Þjóðadeildinni að þakka að Ísland mætir Rúmeníu í EM-umspili 8. október.

Vægi Þjóðadeildarinnar er hins vegar mun minna nú, þegar kemur að því að ná HM-sæti, og í þetta sinn má segja að það komi Íslandi illa að vera í efstu deild með bestu þjóðum Evrópu.

Betra að vinna riðil í D-deild en að lenda í 2. sæti í A-deild

Á næsta ári fer fram undankeppni HM. Leikið verður í 10 riðlum og komast sigurvegararnir beint á HM. Liðin í 2. sæti fara í 12 liða umspil um þrjú laus sæti.

Til að fylla í umspilið komast tvö lið úr Þjóðadeildinni þangað. UEFA hefur hins vegar ákveðið að það verði þau tvö lið sem unnu sinn riðil í Þjóðadeildinni, náðu bestum árangri þar en komust ekki á HM eða í umspilið með árangri sínum í undankeppninni á næsta ári. Þetta kemur fram í svari UEFA við fyrirspurn Vísis.

Íslenska landsliðið sem mætir Englandi æfði á Laugardalsvelli í dag.VÍSIR/VILHELM

Ef sigurvegarar riðlanna í A-deild komast á HM eða í umspil í gegnum undankeppnina, verður því horft til sigurvegara riðlanna í B-deild, svo þeirra sem vinna í C-deild og loks sigurvegara í D-deild ef til þess kemur.

Þannig gætu Færeyjar mögulega komist í HM-umspilið með því að vinna sinn riðil í D-deild, frekar en Ísland jafnvel þó að liðið næði 2. sæti í sínum riðli í A-deild.

Leiðin á HM í Katar

  1. Þrettán lið frá Evrópu komast á HM í Katar 2022.
  2. Leikið verður í tíu riðlum í undankeppni HM á næsta ári. Sigurvegarar riðlanna komast beint á HM.
  3. Liðin tíu sem lenda í 2. sæti fara í tólf liða HM-umspil. Þangað fara líka tvö lið sem unnu sinn riðil í Þjóðadeildinni. Í umspilinu verður leikið í þremur fjögurra liða hópum (undanúrslit og úrslitaleikur) um síðustu þrjú sætin á HM.

Ísland þyrfti því að vinna sinn riðil, sem í eru England, Belgía og Danmörk, til að Þjóðadeildin skilaði liðinu í HM-umspil. Leiðin á HM felst því mun frekar í góðum árangri í undankeppninni á næsta ári.

Fyrsti leikur Íslands í keppninni er gegn Englandi á Laugardalsvelli á laugardag og liðið sækir svo Belgíu heim á þriðjudag. Í október leikur liðið á heimavelli við Danmörku og Belgíu, og loks á útivelli gegn Danmörku og Englandi í nóvember þegar riðlakeppni Þjóðadeildarinnar lýkur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×