Heimsmarkmiðin

Óttast um líf barna í sunnanverðri Afríku vegna matarskorts

Heimsljós
Barnaheill - Save the Children

Óttast er að 67 þúsund börn í löndum Afríku sunnan Sahara svelti í hel fyrir árslok, að mati Barnaheilla – Save the Children. Heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur leitt til aukins matarskorts og ástandið var bágborið fyrir. Samkvæmt greiningu sem birtist í breska læknaritinu The Lancet er talin hætta á því að 426 börn kunni að deyja af sulti dag hvern verði ekki þegar gripið til aðgerða.

Margvísleg hremmingar hafa gengið yfir þennan heimshluta á árinu sem valdið hafa matarskorti, meðal annars ægileg flóð og engisprettufaraldrar, ásamt hækkun á verði nauðsynja. COVID-19 bætti gráu ofan á svart með því að ræna fólk lifibrauðinu og hafa lamandi áhrif á efnahag ríkja, auk þess sem grunnþjónustu eins og heilbrigðisþjónustu ræður engan veginn við vandann.

Fyrr á árinu var talið að fátækt í sunnanverðri Afríku myndi aukast um 23% og samkvæmt spám fram til ársins 2030 er talið að 433 milljónir íbúar í Afríku allri búi þá við næringarskort.

„Lífið var erfitt fyrir mig og fjölskyldu mína en ég vann mikið og við komumst af. Með kórónuveirunni hafa aðstæðurnar versnað. Nú gríp ég í störf endrum og eins. Áður en við fengum stuðning borðuðum við aðeins eina máltíð á dag, morgunverð. Ég hef horft upp á börnin mína fara svöng í svefn. Það er versta tilfinning móður þegar hún getur ekki gefið börnunum sínum að borða,“ segir Ubah, móðir sex barna í Sómalíu í frétt á vef Save the Children.

Samtökin hafa brugðist við fæðuskortinum með því að dreifa mat eða reiðufé til fátækra fjölskyldna, tryggja þeim aðgang að hreinu vatn og styðja við þjónustu á sviði næringar- og heilbrigðismála í samræmi við sóttvarnartilmæli á tímum kórónuveiru. Save the Children hefur hins vegar ekki úr miklum fjármunum að spila og kallar eftir auknum framlögum í þágu fátækustu barnanna í heiminum.

Vefur Barnaheilla – Save the Children á Íslandi

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×