Sport

Dagskráin í dag: Þjóðadeildin, Mjólkurbikarinn, Pepsi Max Mörkin og Evrópumótaröðin í golfi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Selfoss og Valur mætast í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag.
Selfoss og Valur mætast í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag. Vísir/HAG

Það er nóg um að vera í dag. Þjóðadeildin fer af stað, 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu, Evrópumótaröðin í golfi og Pepsi Max Mörkin. Allt í beinni á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag.

Við hefjum leik snemma í dag en Íslandsmeistarar Vals heimsækja bikarmeistara Selfoss í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu í dag. Leikurinn hefst klukkan 17:00 en útsending tíu mínútum fyrr. Reikna má með hörkuleik, Valur trónir á toppi deildarinnar á meðan Selfyssingar eiga titil að verja.

Klukkan 20:00 eru svo Pepsi Max Mörkin í umsjá Helenu Ólafsdóttur á dagskrá. Seint um kvöldið eða klukkan 22:40 er svo uppgjörsþáttur ítalska boltans en Juventus varð Ítalíumeistari níunda árið í röð eftir harða baráttu við Inter Milan, Lazio og Atalanta.

Stöð 2 Sport 2

Þjóðadeildin hefst í dag og sýnum við stórleik Þýskalands og Spánar í beinni útsendingu klukkan 18:45. Útsending hefst tíu mínútum áður. Að leik loknum verða svo Þjóðadeildarmörkin á dagskrá.

Stöð 2 Sport 3

FH og KR mætast einnig í Mjólkurbikar kvenna í dag. Liðin tvö sitja í fallsætum Pepsi Max deildarinnar og mögulega gæti gott gengi í bikarnum leitt til betra gengis í deildinni. Þá eru KR-stúlkur að koma beint úr sóttkví og verður forvitnilegt að sjá hvernig þeim gengur í dag.

Golfstöðin

Við sýnum beint frá Andalucia Masters-mótinu en það er hluti af Evrópumótaröðinni. Fyrri útsending dagsins nær frá 10:00 til hádegis og sú síðari frá 13:00 til 16:00.

Beinar útsendingar í dag

10:00 Evrópumótaröðin (Golfstöðin)

13:00 Evrópumótaröðin (Golfstöðin)

16:50 Selfoss-Valur, Mjólkurbikar kvenna (Stöð 2 Sport)

16:50 FH-KR, Mjólkurbikar kvenna (Stöð 2 Sport 3)

18:35 Þýskaland-Spánn, Þjóðadeildin (Stöð 2 Sport 2)

19:00 Pepsi Max Mörkin (Stöð 2 Sport)

20:45 Þjóðadeildarmörkin (Stöð 2 Sport 2)

Hér má sjá dagskrá Stöðvar 2 Sport og hliðarrása.

Hér má sjá hvað er framundan í beinni á Stöð 2 Sport og hliðarrásum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×