Íslenski boltinn

Selfossstelpurnar hafa ekki tapað bikarleik í 26 mánuði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir og Elín Metta Jensen í baráttu um boltann í leik liðanna í Meistaradeildinni í byrjun sumars.
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir og Elín Metta Jensen í baráttu um boltann í leik liðanna í Meistaradeildinni í byrjun sumars. Vísir/HAG

29. júní 2018 var svekkjandi föstudagskvöld fyrir kvennalið Selfoss þegar þær féllu út bikarnum. Þær hafa hins vegar ekki tapað bikarleik síðan og titilvörn bikarmeistaranna heldur áfram í dag.

Bikarmeistarar Selfoss tekur á móti Íslandsmeisturum Vals í dag í stórleik átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna.

Selfoss hjálpaði Valsliðinu á dögunum með því að vera fyrsta liðið til bæði að skora hjá og að vinna Breiðablik. Valsliðið komst fyrir vikið upp í toppsætið en Blikarnir eiga samt enn leiki inni.

Selfossliðið ætlar sér mikið í sumar eftir sigurinn í bikarinn í fyrra en hefur ekki alveg staðið undir því. Liðið sýndi þó styrk sinn með sigrinum á Blikum á dögunum.

Selfossliðið hefur ekki tapað bikarleik í meira en 26 mánuði eða síðan að Stjarnan sló liðið út í dramatískum leik í júnílok 2018.

Selfoss var 2-1 yfir í leiknum þegar aðeins tvær mínútur voru eftir af framlengingunni en Harpa Þorsteinsdóttir tryggði Stjörnunni vítakeppni með því að jafna metin á 118. mínútu.

Selfossliðið var búið að vera manni færra frá 62. mínútu leiksins og var svo nálægt því að landa sigri. Harpa skoraði tvívegis í leiknum sjálfur og skoraði síðan úr úrslitaspyrnunni í vítakeppninni sem Starman vann 5-4.

Selfoss hefur síðan spilað fimm bikarleiki og unnið þá alla þar af 3-0 sigur á Stjörnunni í sextán liða úrslitum. Selfoss hefur hefnt fyrir bikartapið 2018 með því að slá Garðbæinga út úr bikarnum tvö ár í röð.

Valsliðið hefur ekki komist í bikarúrslitaleikinn í átta ár og datt út í átta liða úrslitunum í fyrra. Það er ljóst að Íslandsmeistararnir ætla sér að komast lengra í ár.

Valur og Selfoss áttu að vera búin að mætast í Pepsi Max deildinni í sumar en leik liðsins var frestað til 9. september. Það þýðir að liðin mætast nú tvisvar á tæpri viku og fara báðir leikirnir fram á Selfossi.

Liðin mættust aftur á móti í Meistarakeppni KSÍ rétt fyrir mót og þar vann Selfossliðið 2-1 endurkomusigur. Elín Metta Jensen kom Val í 1-0 í fyrri hálfleik en mörk frá Tiffany MCCarty og Önnu Maríu Friðgeirsdóttur í seinni hálfleik tryggðu Selfossliðinu sigurinn.

Síðustu tveir bikarleikir Selfoss og Vals hafa verið með fjörugir en þeir enduðu báðir með 3-2 sigri heimastúlkna í Selfossliðinu. Selfoss vann 3-2 í sextán liða úrslitum 2016 og 3-2 í undanúrslitunum 2015.

Valur komst í 2-0 í leiknum 2016 (Elín Metta Jensen og Margrét Lára Viðarsdóttir) en tvö mörk frá Lauren Elizabeth Hughes og sigurmark Heiðdísar Lillýardóttur komu Selfossliðinu áfram. Valur líka 2-0 yfir í leiknum 2015 (Elín Metta Jensen og Lilja Dögg Valþórsdóttir) en þá voru það mörk frá Thelmu Björk Einarsdóttur, Dagnýju Brynjarsdóttur og Guðmundu Brynju Óladóttur sem tryggðu Selfossi sæti í bikarúrslitaleiknum.

Leikur Selfoss og Vals hefst klukkan 17.00 og verður sýndir beint á Stöð 2 Sport. Á sama tíma verður leikur FH og KR aýndur beint á Stöð 2 Sport 2.

Hinir tveir leikirnir í átta liða úrslitunum eru síðan leikur Þór/KA og Lengjudeildarliðs Hauka á Þórsvelli sem hefst klukkan 17.00 og svo leikur Lengjudeildarliðs ÍA og Breiðabliks sem fer fram í Akraneshöllinni og hefst klukkan 19.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×